Page 1 of 2

Hvítur E28

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 17:22
by Bjarkih
Var að skoða M5board.com og rakst á þennan ofboðslega fallega E28. Það er voðalega fátt sem toppar hvíta BMW

Image

http://www.m5board.com/photopost/showphoto.php?photo=6031

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 17:26
by sindrib
það er eh við þessa bíla, það var hvítur e-34 sem kveikti bmw delluna í mér, og núna er ég að spá í hvítum e-38

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 17:28
by gunnar
Mig langar ógeðslega í hvítann BMW, var á tíma að spá í að mála E30 hvítann, hætti svo við..

Það koma allir BMW'ar út vel í hvítu.. 8)

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 17:29
by Bjarkih
sindrib wrote:það er eh við þessa bíla, það var hvítur e-34 sem kveikti bmw delluna í mér, og núna er ég að spá í hvítum e-38


Já, sá einmitt hvítann E34 touring, næstum alveg eins og minn um daginn og ég átti mjög erfitt með að keyra framhjá honum. Hefði bara verið grunsamlegt ef ég hefði stoppað lengur :oops:

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 17:43
by srr
Ég á svona hvítan E28 \:D/

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 17:44
by Svezel
ohh hvað ég sé eftir að hafa ekki keypt hvíta e28 bílinn þegar team punishment var úti í haust :x

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 18:06
by JOGA
Hvítt er málið 8)

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 18:27
by Svíþjóð.
:-$

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 19:34
by ömmudriver
Ég hef ekki ennþá séð fallega hvíta E32 sjöu :?

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 20:04
by Jón Ragnar
ömmudriver wrote:Ég hef ekki ennþá séð fallega hvíta E32 sjöu :?



Hef nú ekki séð hvítann E32 sem ég man eftir!


En dellan hjá mér byrjaði á E34 520iA sem bróðir minn átti...

Hvítur með hvítu leðri og svartri innréttingu 8) 8) 8) 8)

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 20:31
by BjarkiHS
það var nú einn e32 750 hér í Grindavík ekki fyrir svo löngu.
svosem orðinn sjúskaður, en það kom ekki í veg fyrir að mér þætti hann geðveikur :oops:

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 20:45
by íbbi_
ég man alltaf eftir einum hvítum 750 88, svo var hvítur 735 sem fór í stöppu,

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 22:30
by sindrib
íbbi_ wrote:ég man alltaf eftir einum hvítum 750 88, svo var hvítur 735 sem fór í stöppu,


ég og jóhann (Jss) prófuðum 735 bílinn á sínum tíma, þá átti einhver eldri kona hann, hann var einmitt bsk, soldið skemmtilegur

PostPosted: Thu 15. Feb 2007 00:10
by Djofullinn
íbbi_ wrote:ég man alltaf eftir einum hvítum 750 88, svo var hvítur 735 sem fór í stöppu,
Ég man einmitt eftir þessum 750. Ætlaði að kaupa hann þegar hann var einhverntíman tjónaður á allri hliðinni. Var orðinn hálf sjúskaður þá

PostPosted: Thu 15. Feb 2007 00:11
by íbbi_
sagði eitthver hvítur bmw?


:loveit: :loveit: :loveit: :naughty: :shock: 8) :loveit:

Image