bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hvað segið þið um þetta snillingar https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=16591 |
Page 1 of 1 |
Author: | atli79 [ Tue 25. Jul 2006 01:25 ] |
Post subject: | Hvað segið þið um þetta snillingar |
ég var að spá í einum bíl hann er á Litlu Bílasölunni en mér finnst verðið ansi hátt það er ásett á hann 2.1 mill og hann er 2000 árg.323 með leðri og öllum pakkanum Ég tékkaði á listaverði á honum og var mér sagt að hann væri í mesta lagi metinn á 1.8 mill http://www.bilasolur.is/Main.asp?show=C ... _ID=142079 hvað finnst ykkur hér á síðunni, er þetta ekki full mikið á sett á hann |
Author: | zx [ Tue 25. Jul 2006 11:31 ] |
Post subject: | |
Ég get bara bent þér á að skoða vel aukabúnað bílsins og almennt ástand, einnig að skoða hvað markaðurinn hefur að bjóða, listaverð eru ágæt fyrir toyota corolla og þessháttar bíla, listaverð fyrir BMW bíla eru oft út í hött, enda er gjarnan miðað við bíla með litlum eða jafnvel engum aukabúnaði, en eins og þeir sem þekkja BMW vita, ertu ekki lengi að raða aukabúnaði fyrir 1-2 millur og jafnvel mun meira í nýjan bíl. Jafnvel hjá umboðinu B&L virðast menn vera úti á túni með verðlagningar og þá sérstaklega varðandi bíla sem eru innfluttir notaðir þar sem aukabúnaður í þeim bílum er oft meiri en þeim sem seldir hafa verið í gegnum umboðið, en forritið sem B&L við verðlagningu á notuðum bílum nær ekki yfir nema hluta að þeim aukahlutum sem fáanlegir eru, svo þeir virðast ófærir um að koma upp með raunhæf verð í ákveðnum tilfellum. Annars er það nú oft svo að verðið sem upp er sett á söluspjaldinu endurspeglar ekki alltaf það sem eigandi er tilbúin til þess að sætta sig við, sérstaklega ef um bein kaup er að ræða, svo ef þér líst vel á bílinn þá býður þú þá upphæð sem þú ert tilbúin til að borga ![]() |
Author: | HPH [ Tue 25. Jul 2006 16:58 ] |
Post subject: | |
zx wrote: Jafnvel hjá umboðinu B&L virðast menn vera úti á túni
með verðlagningar og þá sérstaklega varðandi bíla sem eru innfluttir notaðir þar sem aukabúnaður í þeim bílum er oft meiri en þeim sem seldir hafa verið í gegnum umboðið en forritið sem B&L notar nær ekki yfir nema hluta að þeim aukahlutum sem fáanlegir eru, svo þeir virðast ófærir um að koma upp með raunhæf verð í ákveðnum tilfellum. fyrigefðu en hvar fékst þú þessar upplisyngar ![]() ![]() |
Author: | Geirinn [ Tue 25. Jul 2006 18:05 ] |
Post subject: | |
HPH wrote: zx wrote: Jafnvel hjá umboðinu B&L virðast menn vera úti á túni með verðlagningar og þá sérstaklega varðandi bíla sem eru innfluttir notaðir þar sem aukabúnaður í þeim bílum er oft meiri en þeim sem seldir hafa verið í gegnum umboðið en forritið sem B&L notar nær ekki yfir nema hluta að þeim aukahlutum sem fáanlegir eru, svo þeir virðast ófærir um að koma upp með raunhæf verð í ákveðnum tilfellum. fyrigefðu en hvar fékst þú þessar upplisyngar ![]() ![]() Ég hef heyrt þetta rætt líka. |
Author: | zx [ Tue 25. Jul 2006 19:48 ] |
Post subject: | |
HPH wrote: zx wrote: Jafnvel hjá umboðinu B&L virðast menn vera úti á túni með verðlagningar og þá sérstaklega varðandi bíla sem eru innfluttir notaðir þar sem aukabúnaður í þeim bílum er oft meiri en þeim sem seldir hafa verið í gegnum umboðið en forritið sem B&L notar nær ekki yfir nema hluta að þeim aukahlutum sem fáanlegir eru, svo þeir virðast ófærir um að koma upp með raunhæf verð í ákveðnum tilfellum. fyrigefðu en hvar fékst þú þessar upplisyngar ![]() ![]() Það er ekkert að fyrirgefa ![]() Þetta eru upplýsingar sem starfsmaður B&L gaf mér þegar hann tjáði mér að hann gæti ekki fundið rétt listaverð á minn bíl þar sem tölvan hjá honum byði ekki upp á að setja inn allann þann búnað sem væri í bílnum, t.d. gat hann ekki metið inn í verð bílsins að hann væri á orginal 18" BMW felgum sem þó er hægt að kaupa hjá B&L fyrir nokkur hundruð þúsund. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |