Page 1 of 3

Talandi um sexur...

PostPosted: Fri 16. May 2003 21:07
by ofmo
Var á rúntinum í Hafnarfirðinum um daginn þar sem ég rak upp stór augu þegar ég sá nokkuð netta sexu; 628 '81 módel... hann var á bílasölunni til móts við slökkviliðsstöðina.

Hann se hvítur, leðraður, ekinn aðeins 130.000 km frá upphafi er mér sagt, lakkið lítur furðulega vel út þrátt fyrir það að það vanti örlitla flís í það rétt ofan við BMW skjöldinn að aftan... er á 15" BMW felgum og lítur bara helvíti vel út að innan sýndist mér... hefði ég verið þarna að degi til hefði ég örugglega beðið um að fá að prófa!

PostPosted: Fri 16. May 2003 21:42
by benzboy
Hvað er sett á svona verkfæri?

PostPosted: Fri 16. May 2003 22:09
by ofmo
lítill fugl hvíslaði að mér að eigandinn tæki 250.000 á borðið...

PostPosted: Sat 17. May 2003 00:08
by Raggi M5

PostPosted: Sat 17. May 2003 01:15
by saemi
Já það er þessi. Þetta er þessi hvíti sem er búið að tala um í fjölmörgum póstum hérna.

Sæmi

PostPosted: Sat 17. May 2003 18:47
by Djofullinn
ofmo wrote:lítill fugl hvíslaði að mér að eigandinn tæki 250.000 á borðið...

250.000??? Það er nánast gefins! :shock:

PostPosted: Sat 17. May 2003 19:25
by Moni
Það er ekki hægt að fá að próf´ann, ég ætlaði að fá að taka aðeins í græjuna, en nei, eigandinn tók lyklana... :( En það er kannski rétt að gera það bara, svo að það séu ekki allir að þjösnast á bílnum manns...

PostPosted: Sat 17. May 2003 19:26
by Halli
skil það vel með svona bíl :P

PostPosted: Sat 17. May 2003 20:35
by Raggi M5
Djofullinn wrote:
ofmo wrote:lítill fugl hvíslaði að mér að eigandinn tæki 250.000 á borðið...

250.000??? Það er nánast gefins! :shock:


Ég veit hver eigandinn er og hann fer aldrei svo lágt!

PostPosted: Sun 18. May 2003 19:14
by bjahja
Raggi M5 wrote:
Djofullinn wrote:
ofmo wrote:lítill fugl hvíslaði að mér að eigandinn tæki 250.000 á borðið...

250.000??? Það er nánast gefins! :shock:


Ég veit hver eigandinn er og hann fer aldrei svo lágt!


Mér finnst líka 250 vera of lítið.

PostPosted: Sun 18. May 2003 21:41
by saemi
Það hefur verið að loða við hann svona 400.000 ef ég man rétt

Sæmi

PostPosted: Mon 19. May 2003 08:52
by uri
Þessi bíll er ekki 400.000 kr virði. Það er mikið ryð í honum og mikið sem þaef að gera fyrir hann!

PostPosted: Mon 19. May 2003 09:17
by saemi
uri wrote:Þessi bíll er ekki 400.000 kr virði. Það er mikið ryð í honum og mikið sem þaef að gera fyrir hann!


Hmm... ég er nú ekki sammála þessu. Ég myndi segja að hann væri fullkomlega þess virði!

Hvar er ryð í bílnum? Ég veit til þess að hann hefur verið tekinn í gegn allur, innréttingin er nýbólstruð, með leðri og lakkið er allt í lagi á honum.

Þú fengir ALDREI svona bíl hingað til lands fyrir minni pening en 400 kall.

Hvað er það sem þarf að gera fyrir bílinn?

Sæmi

PostPosted: Mon 19. May 2003 11:50
by Raggi M5
Sammála Sæma ég myndi alveg hiklaust borga 400 kall fyrir svona bíl þetta fer að verða antik!

PostPosted: Mon 19. May 2003 12:11
by bebecar
Ég hef séð þennan bíl og það er smá ryð í honum en ég held að á heildina sé hann í nokkuð góðu standi.

Það eru hinsvegar hreinar línur að þessir bílar fást ekki ódýrara en þetta... ég er því sammála Sæma (eins og oft áður) að þetta er alls ekki of mikið fyrir þennan bíl. Og þetta gæti verið góð fjárfesting.