Mín drauma EU ferð gæti skipst í 3 mismunandi flokka:
#1: Fara út og kaupa van og toura eins og hippi. Hvaaað hefur maður nú séð þetta oft í bíómyndum
#2: Fara út og kaupa bíl til innflutnings eftir að hafa notað hann sjálfur á ferðalaginu.
#3: Fara út þegar maður er orðinn eldri og kaupa sportbíl sem væri jafnvel hægt að eiga eftir að maður kemur heim.
Varðandi #2, þá hefur maður svosem ekkert svaka mikið um að velja fyrir hálfa milljón og ég held að það sé búið að nefna alla þá kosti sem sniðugastir eru.
Ég er mjög mikið sjálfur fyrir E30 - en ég held þú hefðir MIKLU meira gaman af því að vera á 5-línu BMW þegar þú ert á ROAD TRIPPI og þá væri 525 bíll alveg nóg og ágætis líkur á því að þú gætir selt hann á stuttum tíma eftir að þú kemur heim, sé eintakið gott.
Ég efast um að þú nennir að bíða í útlöndum eftir að Schmiedmann swappi hjá þér.