E39 528iA

Sástu flottan BMW og vilt leyfa okkur hinum að njóta líka? Póstaðu því þá hér.

E39 528iA

Postby Svezel » Thu 24. Apr 2003 11:26

Þannig er að fjölskylda vinar míns er að spá í nýjan heimilisbíl og ég var náttúrlega fljótur að benda á E39 BMW. Svo fórum við í gær að skoða bíla og prófuðum '98 528iA með gersamlega öllu (leður, rafmagn í öllu, changer, lúgu, digital miðstöð o.fl) og vinur minn varð alveg sjúkur en ég var ekki alveg eins hrifinn :?

Á ekki 528 að vinna töluvert betur en 520? Ég var bara ekkert sérstaklega hrifinn af vinnslunni og fannst hann bara ekkert mikið sneggri en minn gamli chippaði 520. Þessi bíll er reyndar dálítill gullmoli, ekki keyrður nema 44þús, innfluttur nýr af B&L og fyrri eigandi kona á sextugsaldri þ.a. að hann er spennandi kostur.

Þessum bíl hefur kannski aldrei verið snúið almennilega og er bara fullur af sóti eða eitthvað. Ég hef keyrt '02 525iA og hann var sneggri en þetta, a.m.k. í minningunni.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby bjahja » Thu 24. Apr 2003 12:53

Ég hef heyrt að 2.8 l vélarnar séu mjög góðar, þær eru gerðar úr áli er það ekki?
Allavegana held ég að það eigi að vera mikill munur á 520 og 528.

Þetta er taflan á Parkers.co.uk:

BMW 520i--------6/1991--150--137--10.7
BMW 523i--------6/2494--170--142--8.5
BMW 525td------6/2498--143--131--10.4
BMW 528i--------6/2793--193--147--7.5
BMW 528i Sport-6/2793--193--147--7.5
BMW 530d-------6/2793--184--140--8.1
BMW 530i--------6/2979--231--155--7.1
BMW 535i--------V8/3498-236-153---7
BMW 535i Sport-V8/3498-236-153---7
BMW 540i--------V8/4398-286-155--6.2
BMW M5 5.0 V8-V8/4941--400-155-5.3

Það á nú að vera töluverður munur á þessum
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Alpina » Thu 24. Apr 2003 18:32

Það hafa verið MJÖG fáir 528 E-39 fluttir inn af B/L meðal annars
O.R.G. keypti einn á sínum tíma og það verður að segjast
þAÐ Á AÐ VERA töluverður munur á þessum bílum í ALLRI HRÖÐUN

Mjög skemmtilegir bílar (er mér sagt)

Sv.H.
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby Jss » Thu 24. Apr 2003 20:50

Eins og ég hef sagt hér áður er 2,8 lítra vélin úr áli og um 30 kg léttari en 2,5 lítra vélin í E36 og E34 bílunum.

Hvað er sett á þennan bíl?
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby bjahja » Thu 24. Apr 2003 20:51

Eins og ég hef sagt hér áður er 2,8 lítra vélin úr áli og um 30 kg léttari en 2,5 lítra vélin í E36 og E34 bílunum.


Ætlaðirðu ekki að segja í E39 bílunum?
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Jss » Thu 24. Apr 2003 20:57

bjahja wrote:
Eins og ég hef sagt hér áður er 2,8 lítra vélin úr áli og um 30 kg léttari en 2,5 lítra vélin í E36 og E34 bílunum.


Ætlaðirðu ekki að segja í E39 bílunum?


Nei, man ekki hvort 2,5 lítra vélinni var breytt e-ð þegar E39 tók við.
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Haffi » Thu 24. Apr 2003 21:09

Nýrri bíllinn er með m52 vél með álblokk en held að gamla fimman og 2.5 með m50 ekki ál. Allavega hvíslaði einhver því að mér
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Svezel » Thu 24. Apr 2003 21:13

Það er nokkuð ljóst að 2.8 er ekki nóg fyrir mig héðan í frá, það verður bara 540 eða M5 :roll:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Alpina » Fri 25. Apr 2003 20:05

AFSAKIÐ en ég ætla ekkert að vera með eitthvað DIZZ eins og
LÖMBIN hérna á spjallinu myndu orða það






mér líður þannig að 540/M5 hljómi eins og hroki eða hortugheit

,,,,,,,,,,,((((((((((((((((((((( ekkert annað))))))))))))))))))))))))))))))))))

528 er ljómandi bíll ekki eins öflugur en miklu bilanafrírri

og hana nú



Sv.H
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby Svezel » Fri 25. Apr 2003 20:20

Þetta var nú meira sagt í gríni en alvöru og ég vona að ég hafi ekki sært neinn. Ég er nú bara kominn á þá skoðun að þessi tiltekni bíll hafi ekki verið að skila sína því '02 E39 525 er besti bíll sem ég hef keyrt.

Annars er langar mig orðið í beinskiptan E39 og koma stóðhestunum almennilega í götuna :D
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Ozeki » Sun 27. Apr 2003 10:34

ég sé nú bara ekkert að því að menn skrifi að 528 (eða eitthvað annað) uppfylli ekki sínar kröfur (um upptak eða eitthvað annað) ...

og Alpina hafi einmitt verið með óþarfa DIZZ hérna, á sama tíma eignað hugtakinu einhverjum lömbum hér á spjallinu sem mér fynnst vera svolítið niðrandi

af því má leiða að það séu lömb hér á spjallinu og Alpina sé ekki eitt af þeim ...

er ekki spjallið hérna til að lýsa skoðunum og upplifun sinni á BMW ... það hlýtur þá meiga gagnrýna. ég veit ekki um aðra hér á spjallinu, en ég myndi ekki nenna að lesa tómar lofræður um allar tegundir af BMW. sjálfur á ég E39 520i og er harðánægður með upptakið í honum. skoðanir manna eru mismunandi og við svezel værum kannski ekki sammála um upptakið í þessum 528 bíl (nema það sé bara eitthvað að bílnum).
en það sem hann skrifaði var hvergi nálægt neinum hroka.

og hana nú 8)
User avatar
Ozeki
Kassabílstjóri
 
Posts: 167
Joined: Wed 16. Oct 2002 15:12
Location: Hér og Nú

Postby morgvin » Mon 28. Apr 2003 04:01

Já Alpina var heldur harðorður þarna.
Svezel á sínar skoðanir og má segja það sem hinum hentar svo lengi sem það brýtur ekki í bága við almenna kurteysi og mannréttindi.
Og það getur bara meira en verið að þessi 528i bíll sé bara ekki í réttu standi.
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby Svezel » Mon 28. Apr 2003 08:33

Við fórum að prófa bílinn aftur á laugardaginn og þá reyndist hann vera farinn vinna betur, farinn að vinna eins og skildi. Lítur út fyrir að nýr meðlimur í klúbbinn sé á leiðinni :D
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby iar » Mon 28. Apr 2003 19:09

Svezel wrote:Við fórum að prófa bílinn aftur á laugardaginn og þá reyndist hann vera farinn vinna betur, farinn að vinna eins og skildi. Lítur út fyrir að nýr meðlimur í klúbbinn sé á leiðinni :D


Var skiptingin ekki bara í "letiham" í fyrra skiptið? Það getur munað ansi miklu hvernig síðasti ökumaður ók þar sem skiptingin er adaptive.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby bebecar » Tue 29. Apr 2003 08:21

Ég myndi hallast að "letham" á skiptingunni. Ég hef keyrt bíl með svona skiptingu eftir hattakall og það var eins og hann væri 30 hestöfl! :wink: Þangað til að ég var búin að vera á honum í heilan dag!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Next

Return to Áhugaverðir bimmar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 51 guests