
Posted:
Mon 07. Nov 2005 19:03
by Alpina
Það finnst mér undarlegt,,, hvað spjallverjar (( sumir)) einblína á ebay.com,, þegar um evrópskar bifreiðar eru að ræða

Posted:
Mon 07. Nov 2005 19:30
by Jón Ragnar
dalurinn er líka bara 60kr


Posted:
Mon 07. Nov 2005 19:31
by Jón Ragnar
Og það eru oft ótrúlega snyrtilegir bílar á ebay.com
kaninn kann alveg að vera lovin´ við bílana sína

Posted:
Mon 07. Nov 2005 20:17
by bimmer
Dollarinn er jú helvíti lár núna og svo er maður oft að skoða eitthvað BMW dót þá slæðast bílar með.
Fínt að versla BMW aukahluti í USA í dag.
Veit samt ekki hvort ég myndi versla BMW þaðan.

Posted:
Mon 07. Nov 2005 20:20
by ///Matti
Þetta er flottur bíll en ég myndi bara aldrei kaupa mér ''US'' M3


Posted:
Mon 07. Nov 2005 20:24
by Logi
///Matti wrote:Þetta er flottur bíll en ég myndi bara aldrei kaupa mér ''US'' M3

Það er allt í lagi að kaupa svona bíl í staðinn fyrir 328i, eða ef planið er að blása inná mótorinn! En USA E36 M3 er náttúrulega ekki samanburðarhæfur við Euro M3...

Posted:
Mon 07. Nov 2005 20:30
by ///Matti
Það er allt í lagi að kaupa svona bíl í staðinn fyrir 328i, eða ef planið er að blása inná mótorinn!
Það er svosem rétt en mér finnst bara M3 ekki vera M3 nema þýskur sé


Posted:
Tue 08. Nov 2005 10:42
by grettir
Alpina wrote:Það finnst mér undarlegt,,, hvað spjallverjar (( sumir)) einblína á ebay.com,, þegar um evrópskar bifreiðar eru að ræða
Er ekki sama hvaðan gott kemur?


Posted:
Tue 08. Nov 2005 12:31
by IvanAnders
Þetta er svo skrítið með US M3-inn, það myndu allir slefa ef að hann héti 332i eða álíka, en ///M3 á bara að vera meira hardcore, og alls ekki automatic
