Page 1 of 1

E30 318is hjá TB

PostPosted: Mon 26. Sep 2005 17:09
by bjahja
Veit einhver hvaða bíll þetta er.
Svartur bíll, númeralaus og er búinn að standa þarna í svolítin tíma.
Það er búið að setja "hænsnanet" í framstuðarann en fyrir utan það lítur hann ágætlega út.

Re: E30 318is hjá TB

PostPosted: Mon 26. Sep 2005 17:45
by Djofullinn
bjahja wrote:Veit einhver hvaða bíll þetta er.
Svartur bíll, númeralaus og er búinn að standa þarna í svolítin tíma.
Það er búið að setja "hænsnanet" í framstuðarann en fyrir utan það lítur hann ágætlega út.

Já tók einmitt eftir honum þarna um daginn..... Væri gaman að fá meira infó

PostPosted: Mon 26. Sep 2005 18:14
by jens
Þessi bíll er í eigu frænda míns sem er hér á spjallinu H bmw318is. Þetta er us bíll, 11/90 annar af tveimur á landinu og er með skráningarnúmer PI019 hann er í 100% lagi en er í yfirhalningu á tímakeðju. Hörku bíll en það er kanski best að eigandinn segi sjálfur frá hann er að safna að sér hlutum til að gera bílinn en betri.

Bmw 318is

PostPosted: Mon 26. Sep 2005 19:13
by H bmw318is
'Eg eignaðist þennan bíl í fyrrasumar og var þá búið að brjósta inní hann ræna úr honum græjunum og brjóta alla innréttinguna. Þetta er fyrsti bmw inn minn og hann hefur reynst mér ótrúlega vel. Er í tékki útaf hljóði í tímakeðju og er ætlunin að finna nýja innréttingu og reyna að koma honum í topp stand

PostPosted: Mon 26. Sep 2005 19:41
by GunniT
Ég á nýja innréttingu handa þér

uppl. í
pm

Eða í síma 8663170

PostPosted: Tue 27. Sep 2005 08:43
by bjahja
Var einmitt að spá hvort þetta væri "ljósa bmwinn"
En ertu eithvað í söluhugleiðingum?

PostPosted: Tue 27. Sep 2005 09:49
by H bmw318is
Það er allt falt fyrir rétt verð. Ætla samt að koma honum í gott stand fyrst og svo hugsar maður málið.

PostPosted: Wed 28. Sep 2005 20:09
by Knud
Frændi minn átti þennan bíl í nokkur ár
Líklega eigandinn á undan þessum sem á hann núna seldi hann í fyrrasumar, hann fór frekar illa út úr því þegar var brotist inn í hann... stolið 5000 króna græjum, virkilega sorglegt. Mælaborðið var einmitt rifið í spað.

Annars er þetta nokkuð nettur bíll, nema þetta í framstuðaranum :)

PostPosted: Wed 28. Sep 2005 21:05
by CosinIT
bróðir minn átti þennan bíl í nokkur ár. var akkúrat að skoða hann um daginn sýndist ég ekki sjá dældina í mælaborðinu sem var alltaf eftir að það var brotist´inní hann. því að það var farið með kúbein á mælaborðið. og það stóð beint útí loftið þegar komið var að honum um morguninn.

enn þetta er líka skemmtilegasta eintak af 318 is sem ég veit um. er eins og límdur á veginum. eyðir littlu sem engu þegar maður notar bensínið sem á að nota á hann. þeas 98 oktan. og kallin í tb var alveg gáttaður þegar hann opnaði húddið á honum og sagði að þessi vél ætti ekki að vera þarna oní

PostPosted: Wed 28. Sep 2005 21:32
by jens
CosinIT skrifar:

þegar hann opnaði húddið á honum og sagði að þessi vél ætti ekki að vera þarna oní


Hvað áttu við.

PostPosted: Wed 28. Sep 2005 21:43
by CosinIT
að þetta væri vélin sem varí e36 is bílunum skildist mér

PostPosted: Wed 28. Sep 2005 22:48
by Stefan325i
þetta er vélinn sem kom í E36


nema hvað hún kom fyrst í E30