Góðan daginn,
Það er eitthvað að hellast yfir mig E30 dellan sem ég hafði á háu stigi fyrir nokkrum árum.
Þá var ég búinn að finna mér nokkra bíla sem ég hafði augastað á og reyndi að kaupa þá á sínum tíma.
Ég ætlaði því í ganni að sjá hvort einhver hér kannaðist við gripina.
Bílarnir sem ég sakna eru (afsakið man ekki númerið á þeim)
Grænn 2dyra 323i '84 með M kassa þ.e. 1 gír niður og læst drif. Annsi skemmtilegur bíll sem ég gerði tilboð í ca. '98 eða '99 en hef ekki séð síðan.
Grár 4dyra 323i '84 sem stóð inni á réttingarverkstæði í Hafnarf. Var með sportinnréttingu og topplúgu og var lítið ekinn. Langar endilega að vita hvað varð að þessum. Hefði getað orðið virkilega flottur.
Rauður 4 dyra 325i '87 Keyrði um í þónokkurn tíma grunnaður að hluta. Sýndist á öllu að þarna væri flottur bíll á ferð.
Svartur 2 dyra 325i ca. '88 með risa barnakerru handfang að aftan(spoiler) en var annars mjög svo laglegur bíll.
Gamli minn 2 dyra 323i '84 "Baur-Top" eða svona hálf blæja. Gat lítið notað hann og sé eftir því að hafa ekki bitið í mig að gera hann upp eins og ég ætlaði í byrjun.
Man ekki eftir fleiri í bili en endilega fræðið mig um hvað varð um þessa. Sérstaklega þessa 4dyra þar sem ég væri alveg til í eitthvað líkt þeim í dag.
Kveðja
Jón Garðar




