Page 1 of 1

e36 323 '96 á 500000 bara í dag!

PostPosted: Tue 01. Apr 2003 09:15
by Jói
Ég var að fá vitneskju um gaur sem er að selja BMW e36 323 '96 vegna vanskila, en hann er BARA til sölu NÚNA Í DAG FYRIR 16.00. VÍS mun nefnilega taka bílinn í dag klukkan 16.00 vegna nokkra 10 þúsund króna vanskila á tryggingum og þá verður verðið margfalt hærra. Þess vegna ætlar eigandinn að reyna að selja bílinn í dag á MJÖG MIKIÐ lækkuðu verði. Við erum að tala um svona 500 þ kr, ekkert áhvílandi, fyrir svartan e36 323 4 dyra, ekinn 115 þ! Þeir sem hafa áhuga ættu bara að kíkja á bílinn og eigandann, því ég veit ekki símanúmerið hjá honum. En bíllinn stendur við Helluhraun 30, og eigandinn er að vinna í búð sem er þar. Þeir sem hafa áhuga ættu bara að kíkja inn til hans og spurja út í bílinn, EN BARA NÚNA Í DAG FYRIR kl. 16, og spurja fyrir um bílinn inn í búðinni á Helluhrauni 30 í Hfj. Þetta eru kjarakaup aldarinnar!!! :shock: Sá fyrsti sem er tilbúinn að kaupa hann mun sennilega fá bílinn!!!

PostPosted: Tue 01. Apr 2003 10:15
by saemi
Hmmm.. er nokkuð fyrsti Apríl í dag?...

:lol:

PostPosted: Tue 01. Apr 2003 10:40
by Djofullinn
Ef það væri ekki 1. apríl þá mundi ég nú sennilega skreppa þangað og versla bílinn :)

PostPosted: Tue 01. Apr 2003 11:01
by Haffi
Sakar ekki að taka rúnt og láta gabba sig :) Ég hef bara gaman af því að láta skíta svona í hausinn á mér.

PostPosted: Tue 01. Apr 2003 11:08
by saemi
Damn, akkurru var ég að eyðileggja þetta. Ég skrifaði þetta með fyrsta apríl bara án þess að hugsa, svo þegar ég var búinn að pósta þetta, þá fattaði ég að ÞAÐ ER 1 APRÍL Í DAG... ehehehe talandi um ljóskur...!

Sæmi stupid

PostPosted: Tue 01. Apr 2003 11:09
by Haffi
LOL ! :lol:

PostPosted: Tue 01. Apr 2003 11:11
by Djofullinn
HAHAHAHA hí á Sæma

PostPosted: Tue 01. Apr 2003 12:23
by hlynurst
Damn you! Ég las þetta líka og :) trúði þessu... þetta var bara of gott til að sleppa þessu.

PostPosted: Thu 03. Apr 2003 17:39
by Jói
hlynurst wrote:Damn you! Ég las þetta líka og :) trúði þessu... þetta var bara of gott til að sleppa þessu.


Mottó: Ef það er of gott til að vera satt þá er það of gott til að vera satt. :wink:

PostPosted: Thu 03. Apr 2003 19:53
by hlynurst
Undantekningin sannar regluna. :wink: