bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Tekið af rally.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=1145
Page 1 of 1

Author:  ///MR HUNG [ Fri 28. Mar 2003 20:55 ]
Post subject:  Tekið af rally.is

Til sölu BMW var 520 "89 árgerð en er nú með 302 ford vél sem er með fjögurra hólfa tor og álmilliheddi, er einnig með stóru háspennukefli og nýju 2,5 tommu sérsmíðuðu pústi sem kemur út fyrir framan afturdekk. Sjálfskiptur 3þrepa með overdrive. 17 tommu álfelgur og léleg dekk, kenwood cd, 220w pioneer hátalarar inni á armpúðanum afturí, 280w kenwood hátalarar í afturhillu, 15 tommu 450w JBL keila í heimasmíðuðu boxi, einn 150w JBL magnari fyrir keilu. Bíllinn er dökkgrár og er ekki á númerum vegna vélaskipta. Það er eftir að klára bílinn en það er lítið eftir, það vantar rafgeymi, lofthreinsara og svo er upphengjan á drifskaftinu ónýt og einnig á eftir að tengja mæla nema hraðamæli. Vil fá 450 þús fyrir hann með græjum en 400 þús án þeirra. en skoða öll tilboð og skipti. sendið spurningar á e-mailið og ég svara eins fljótt og ég get.
henrietta @simnet.is


ÞAÐ SEM SUMUM DETTUR Í HUG :shock:

Author:  morgvin [ Fri 28. Mar 2003 22:29 ]
Post subject: 

ekki vill ég fá BMW sem er ekki með BMW vél.

Author:  saemi [ Fri 28. Mar 2003 23:20 ]
Post subject: 

Jesús minn.. mér svelgist bara á við þennan lestur.

Pústin út fyrir framan afturdekk ... hrollur.... :roll:

Sæmi :lol:

Author:  bjahja [ Sat 29. Mar 2003 04:49 ]
Post subject: 

Að láta bandaríska vél í Bmw er stórt Ó Ó.

Author:  Svezel [ Sat 29. Mar 2003 09:36 ]
Post subject: 

Aldrei verið hrifinn að svona crossbreeding... :lol:

Author:  bebecar [ Sat 29. Mar 2003 10:14 ]
Post subject: 

Svona crossbreading er náttúrulega sérhæfing hjá "hillbillies" :wink:

En án gríns, þá er þetta nú ekki verra en margt annað hobbí finnst mér - ílla farið með góðan BMW en þetta er ekki BMW lengur og örugglega skondið farartæki!

Author:  oskard [ Sat 29. Mar 2003 11:03 ]
Post subject: 

:evil: :evil: :evil: :evil: :evil: :evil: :evil:

óóóóóóóóóóóóójjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj

Author:  morgvin [ Sat 29. Mar 2003 18:25 ]
Post subject: 

Og segja BMW 520 til sölu það er nú mesta ó ó sem hægt er að gera í þessum málum.

En geta þeir ekki haldið sig við amerísku bílana sína og látið þýsku eðal vagnana í friði.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/