Sælir,
Ég rakst á E34 M5 svartan fyrir utan verkstæði sem er gengt Vöku á Eldshöfaðnum rétt áðan.
Rölti aðeins í kringum bílinn og skoðaði. Þá birtist eigandinn og var á heimleið. Hann spyr mig strax "Hefuru áhuga á bimmanum" og ég segist bara vera með almenna bílaforvitni og sérstaklega þegar um er að ræða einn af 11 stykkjum til af E34 M5.
Eftir smá spjall við eigandann kom í ljós að hann keypti bílinn á uppboði hjá Vöku í desember á xxx.xxx krónur. Bíllinn er með 3.6l mótornum og er ekinn 157.000 km. Startar og gengur vel að sögn hans. Það sem er að bílnum er útlistlega séð sýndist mér. Það vantar afturstuðarann og innréttingin þarf á mikilli púslhæfni að halda (er 50% í aftursætinu sýndist mér). Einnig vantaði einhverja plastlista meðfram hliðunum á bílnum.
Bíllinn var á svaðalega djúpum felgum (veit ekki hvað þær heita).
Eigandinn er til í að láta bílinn "ódýrt" ef einhver vil laga hann sjálfur en annars ætlar hann að dunda sér í þessu eitthvað....
Ég bara VARÐ að deila þessu með ykkur
Og já, ég er með kontakt upplýsingar hjá honum ef einhver hefur virkilegan áhuga.