Ef þú heldur að ég hafi áhyggjur af rekstrarkostnaði þá ertu eitthvað að misskilja
Ég hef hingað til ALDREI nokkurn tímann valið bíl með það í huga
Ég gæti vel hugsað mér E30 M3 líka en þeir eru samt of dýrir miðað við hvað þeir eru, nema náttúrulega heima þar sem þeir fást á fínum verðum (þegar þeir fást) E34 M5 er bara fínt bargain í dag og hefur verið það nokkuð lengi.
Það mætti eiginlega skoða þetta svona í M bílum:
E28 - höfðar hiklaust til mín, en hefur ekki upp á eins mikið að bjóða og E34, sérstaklega hvað varðar daglega notkun (ég ætti t.d. mjög erfitt með að fá mig til að keyra E28 M5 í salti og drullu en myndi ekkert spá í það á E34 M5)
E34 - höfðar mikið til mín, mátulega stór, nægilega öflugur, nægilega spes, fjöldinn allur af mismunandi útfærslum, afskaplega vígalegur og rock solid í rekstri (fyrir vel hirtann bíl auðvitað).
E39 - höfðar ekki mikið til mín, ekki fallegasta boddíið - mér finnst ekki vera nógur munur á milli E34 og E39 M5 (finnst t.d. stökkið yfir í E60 vera gígantískt) og hér veit ég að margir eru fullkomlega ósammála mér og meðal annars benda sölutölur BMW á að ég hafi rangt fyrir mér

. Svo virðist vera mikið pillerí með þessa bíla og ég er ekki viss um að ég myndi "leyfa" honum eitthvað vesen...
E60 - í fyrsta lagi of dýr fyrir mig - en jú hann höfðar til mín en á þeim verðum sem hann er í dag yrði alltaf eitthvað annað fyrir valinu (911 t.d.)
M3 - höfðar mikið til mín og gæti ég vel hugsað mér slíkann bíl á pari við E34 M5, semsagt til daglegra nota - enda reyndi ég mikið að fá frúnna til að samþykkja kaup á slíkum bíl árið 1999! Hún vildi hinsvegar ekki gúddera tvær hurðar þá....