Sammála romsunni í Sven hér að ofan. Hef ekið e60 M5 þónokkuð, f10 M5 nokkur hundruð kílómetra og e39 M5 einhverja þúsundir kílómetra.
e60 er svakalega græja og í reynd algert "bargain" í dag nokk sama hvar í heiminum maður drepur niður fæti, hvort eigendur hafa síðan efni á að reka tækið er oft annað. f10 er svo allt annar kapítuli, mér finnst hann of stór og mikil drossía fyrir mig, og soldið of fínn kannski
e60 væri ég til í ef ég nennti bensínmokstrinum en held ég tæki alltaf e90 M3 frekar, en það er enn önnur umræða... Hef ekið þannig töluvert og sá bíll er að mínu mati rökrétt framhald e39 M5, togar reyndar minna og meiri top end, en lítið minni og bara næs bíll.
Hef því miður aldrei ekið e34 M5 og bara setið í nokkrum sinnum hjá Sveinka í TT, vantar alveg þann samanburð.
Þetta er eins og í 991 fræðunum, mönnum finnst meiri fílíngur í 997 en 991, 991 hiklaust betri bíll per se, en ekki sami fílíngurinn. T.d. rafurmagns stýrið osfr. Epli, appelsína og marengsfrauð.