Sko mér finnst þessi nýji 3 línu bíll vera svakalega flottur, mér finnst 4 dyra bíllinn vera æði og alveg frá því ég sá hann fyrst þá varð ég hrifinn af honum. Ekki eins og með 5 línuna að ég var ekki viss hvað mér þætti fyrst þegar ég sá þann bíl.
Ég hef alltaf verið hrifinn af 2 dyra 3-línu coupe en það er eitthvað alveg hrikalega að pirra mig afturljósin á þessum nýja 2 dyra coupe.
Þetta eru myndir af afturljósunum af 4 dyra bílnum og afhverju gátu þeir ekki reynt að hafa ljósin eitthvað svipuð.
Svo afturljósin á núverandi 5 og 7 línum:
P.s. Annars finnst mér mest spennandi við þennann nýja 3-línu bíl að það er hægt að fá 2 dyra coupe 335d og er alls ekki svo dýr.
286 hp og torqar 580 Nm.
Og það sem mér finnst skemmtilegur kostur er að það er hægt að fá tölvukubb fyrir um 100 þús kall með ísetningu og sá öflugasti sem ég hef fundið sem ég myndi þora setja í bílinn lætur hann skila 340 hp og 700 Nm . Og það útúr 3 lítra dísel.
Með svona mikið torque myndiru ekki draga hjólhýsið í útileiguna, heldur mundir þú draga húsið þitt.
Og eyðslan ekki nema um 8-10 lítrar á 100 km.
Sem er auðvitað rúsínan í pulsuendanum.
Æ, þið verðið bara að fyrirgefa mér hvað ég er orðinn hrifinn af þessum nýju disel Bimmum.