Deviant TSi wrote:
Tja, kynfærin heimta nýja gellu um hverja helgi og nýjasta tíska virka vel get ég sagt þér

Ég og *kjáninn* útí heimi fáum örugglega meira á broddinn en þú með lambúshettuna
Annars er þetta nú bara alltsaman í léttu gríni.. bjóst svosum alveg við því að verða étinn lifandi af einhverjum fyrir þetta komment

Voðalega finnst mér þetta aumt. Ég stend fastar á því en jörðinni að það er ekki nýjasta tíska sem virkar til að koma manni áleiðis upp í rúm. Það virkar best að vera þú sjálfur (ég geng þá út frá því að þú sért góður einstaklingur, ekki einhver rugludallur), vera almennilegur, sæmilega öruggur með sjálfan sig og reyna ekki of mikið. Það er svo annað mál að það er frekar fráhrindandi að vera subbulegur og illa til fara.
Eiginlega þarf líka að kunna að klæða sig, hvort sem þú fylgir tískunni eða ekki. Íþróttasokkar og stuttar buxur eru ekki það sem kveikir í kvenfólkinu.
Svo finnst mér líka voðalega kjánalegt að segja að kynfærin heimti nýja gellu um hverja helgi. Er það mjög gefandi. Er það ekki svona eins og að skipta um bíl í hverri viku. Er ekki betra að finna sér e-n góðan og halda í hann. Læra inn á hann og geta tekið á honum almennilega, í stað þess að vera alltaf að þreifa sig áfram feimnislega á e-u nýju dótaríi sem er kannski meingallað þegar allt kemur til alls. Ég er ekki að segja að þú eigir að keyra sama bílinn alla ævi, en ef ég ætti M5 þá væri ég alveg sáttur í svolítinn tíma
