Þetta er farið að minna mann á lagið "Dream Police" með Cheap Trick, nema með "Stock" í stað "Dream". Þegar einhver kemur með mynd af bimma sem er eitthvað búið að breyta í útliti þá er alltaf viss hópur sem fúlsar við og kallar viðbjóð.
Ég er sjálfur frekar hógvær í breytingum en þetta er virkilega smekklegur bíll að mínu mati.
Voru ekki þakbogar á E34 M5 touring?
Mér finnst touring/station bílar ekki flottir án þeirra, það er eins og það vanti eithvað.
En þessi bíll finnst mér mjög flottur, væri gaman að sjá hann með þakboga