Page 1 of 2

hraði

PostPosted: Wed 05. Mar 2003 23:20
by Halli
getur einhver sem er á 325 beinskiptum sagt mér c.a hvaða
snúning mótorinn er á 90km hraða í 5gír :wink:

PostPosted: Wed 05. Mar 2003 23:37
by rutur325i
Ég myndi segja þér það ef snúningshraðamælirinn minn virkaði :?

PostPosted: Wed 05. Mar 2003 23:48
by Alpina
Mjög algengt er 2600-2700 í 100 km/klst



Sv.H.

PostPosted: Thu 06. Mar 2003 09:02
by Bjarki
Ef þú veist hlutföllin í bílnum þínum þá getur þú reiknað þetta út:
http://www.unixnerd.demon.co.uk/revs.html

PostPosted: Thu 06. Mar 2003 09:15
by Haffi
minn er á 2000rpm á 100km/h

PostPosted: Thu 06. Mar 2003 20:05
by Djofullinn
Er enginn hérna sem á 325i beinskiptann sem nennir að taka smá rúnt og athuga þetta?
Okkur vantar að vita þetta uppá hvort við eigum að skipta um drif í bílnum mínum eða ekki :)

Flamatron, ert þú ekki til í að taka smá rúnt? :roll:

Þetta væri mjög vel þegið!

PostPosted: Thu 06. Mar 2003 20:55
by Djofullinn
Minn er nefnilega í 3200 snúningum á 100 km/h,
okkur finnst það full hár snúningur...

PostPosted: Thu 06. Mar 2003 23:47
by bjahja
Ég get látið þig vita hvernig minn er í hádeginu á morgun.

PostPosted: Fri 07. Mar 2003 00:26
by hlynurst
Djofullinn wrote:Minn er nefnilega í 3200 snúningum á 100 km/h,
okkur finnst það full hár snúningur...


Hann er bara eins og Hondurnar... þetta hljómar ekki vel.

PostPosted: Fri 07. Mar 2003 00:37
by Haffi
Bjarni: kom eitthvað fyrir eina felguna hjá þér? Sýndist ég sjá þig á varadekkinu í dag.

PostPosted: Fri 07. Mar 2003 11:09
by bjahja
Nei ég sprengdi bara dekk :(
Ég er í 2100 snúningum á 90 í fimmta gír.

PostPosted: Fri 07. Mar 2003 11:52
by flamatron
Ég er á um 2300/2400 snúning á hundrað. á 15" vetrar dekkjum.

PostPosted: Fri 07. Mar 2003 12:08
by Djofullinn
Frábært! Takk kærlega strákar 8)

PostPosted: Sun 09. Mar 2003 13:23
by Þórður Helgason
Minn gamli 2002 árg 69 var á nálarbreidd yfir 2000 sn á 100 km hraða í hæsta gír (4.) Hann var frábær torkari (10 sek í 100) með einum venjulegum blöndungi.

Mér finnst allt of mikið ef þið eruð að snúa þessum vélum ykkar mikið yfir
2200 á 100.

Allavega virðist torkið ekki alltof mikið miðað við þessar uppl.

Reyndar hefur snún.hraði aukist með árunum. En í BMW á hann að vera lágur í hæsta gír.

PostPosted: Sun 09. Mar 2003 14:28
by Guest
skiptir ekki máli hvernig drif og solleiðis dæmi er í bílunum?