bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
m40 gangtruflanir https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=9567 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bjarki [ Thu 10. Mar 2005 14:25 ] |
Post subject: | m40 gangtruflanir |
Smá case hérna með einn gamlan en góðan 316iA e30 89' eða '90, m40. Þegar hann er kaldur þá gengur hann en ekki lengur en í svona tvær mín. Mjög góður kaldur gangur og allt mjög ljúft svo byrjar hann að hiksta og allt búið, vill ekki meira. Það sem er búið að prófa að skipta um er: Háspennukefli, Bensíndæla, Fuel Pressure Regulator (bensínþrýstingsjafnari), Bensíndælu relay, Loftflæðiskynjari. Hann fær semsagt nóg bensín og það er réttur þrýstingur á því, hann gefur neista á öll kertin, gengur líka eins og klukka þegar hann gengur. Búinn að yfirfara allar vaccum slöngur en það er náttúrlega ekki 100% að yfirfara þær með augunum! Á eftir að prófa að setja nýjan tölvuheila í, á hann til og það er næst á dagskrá. Semsagt ef það sama gerist með nýjan tölvuheila þá fjárfesti ég í vaccum-mæli og eftir það þá er ég ráðalaus en þó ekki á leiðinni á verkstæði bara hugsa smá ![]() Eitthvað sem mönnum dettur annað í hug? Allar pælingar vel þegnar. |
Author: | saemi [ Thu 10. Mar 2005 14:45 ] |
Post subject: | |
Prófa að klemma slönguna sem fer í kaldræsispíssinn. Hann gæti verið bilaður alltaf opinn (lekur) og þá fær bíllinn alltof ríka blöndu þegar hann hitnar. |
Author: | Höfuðpaurinn [ Fri 11. Mar 2005 12:33 ] |
Post subject: | |
lenti í svipuðu með bílinn minn, hann gekk vel á meðan hann var kaldur en svo þegar hann varð heitur þá fór hann ganga bara á 5 cyl. það var prófað að skiptu um háspennukefli, kerti, súrefnisskynjarann og prófað að skipta um tölvu (sem fékkst að vísu aldrei til að virka) en á endanum fór ég í b&l og lét þá mæla hvort að tölvan væri ónýt, svo var nú ekki og fundu þeir eftir svolitla leit að þetta var eitthvað viðnám einhversstaðar í fjandanum sem var farið, skipt um það og allt í goody.. |
Author: | Bjarki [ Sat 12. Mar 2005 13:54 ] |
Post subject: | |
mér þykir kenning sæma líkleg, því ef maður hugsar um hvað elektroníska kerfið er að gera á þessum tíma þá er það að loka fyrir þennan ventil. En hvar er þessi ventill á m40 vélunum?? á m10 þá blasir þetta við manni en svo virðist ekki vera á m40. |
Author: | oskard [ Sat 12. Mar 2005 13:57 ] |
Post subject: | |
eruð þið ekki að tala um idle control valveinn ?? nr 5 ![]() |
Author: | saemi [ Sat 12. Mar 2005 21:00 ] |
Post subject: | |
Nei, bensínspíssinn, kannski er ekki auka spíss eins og í M10, M20 og M30 vélunum??? |
Author: | oskard [ Sat 12. Mar 2005 21:03 ] |
Post subject: | |
wh00t hvar er þessi spíss á m20 ? ![]() |
Author: | saemi [ Sat 12. Mar 2005 21:06 ] |
Post subject: | |
Ofan á soggreininni alveg út í enda fyrir miðju. Blár á lit að mig minnir |
Author: | oskard [ Sat 12. Mar 2005 21:09 ] |
Post subject: | |
http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=13&fg=15 nr3 ? |
Author: | oskard [ Sat 12. Mar 2005 21:12 ] |
Post subject: | |
eða er það bara venjulegur spíssi kanski |
Author: | saemi [ Sat 12. Mar 2005 21:31 ] |
Post subject: | |
Nei þetta eru venjulegu spíssarnir! |
Author: | oskard [ Sat 12. Mar 2005 21:38 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | saemi [ Sun 13. Mar 2005 00:11 ] |
Post subject: | |
Kommonnnnnnn..... á ég að fara að fletta þessu upp? Þegar þú opnar húddið þá blasir þetta við þér! |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |