bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vesen með samlæsingu og km mæli https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=8845 |
Page 1 of 1 |
Author: | Höfuðpaurinn [ Tue 11. Jan 2005 13:21 ] |
Post subject: | Vesen með samlæsingu og km mæli |
já sælir meistarar, ég er nú alveg nýr í þessum bmw bransa og þarf þar af leiðandi smá hjálp: 1. Bilun í samlæsingu sem lýsir sér þannig að ég þarf oftast að læsa tvisvar til að bíllinn læsist; læsi, bíllinn læsist og opnast strax aftur, læsi, bíllinn læstur. Þetta er að öllum líkindu eitthvað í læsingunni í skottinu, þar sem bíllinn á það til að læsast, eða læsa og opna aftur, þegar ég opna skottið. kannast einhver við þetta eða á ég bara að prófa að rífa innréttinguna úr skottlokinu og baða þetta í WD40 2. Littli km mælirinn er farinn að núllstilla sig upp úr þurru, það er ekkert ákveðið system með það nema að þetta skeður bara svona þegar honum dettur það í hug... getur verið í lagi í viku og svo tekið upp á því að núllstillast í hvert skipti sem bíllinn er hreyfður. (sýnir eitthvað þegar ég drep á bílnum og núll þegar ég starta honum næst) |
Author: | Einsii [ Tue 11. Jan 2005 13:37 ] |
Post subject: | |
1. prufaðu að aftengja motorinn i skottinu og þá sérðu hvort það sé hann... svo veit ´g ekkert hvernig þú gerir við það ![]() 2. er ekki battery í mælaborðinu sem gæti verið slapt svo hann tapar minni? |
Author: | Höfuðpaurinn [ Fri 21. Jan 2005 17:05 ] |
Post subject: | |
jæja, drullaðist loksins til að rífa mælaborðið úr honum og fór með það í b&l til að fá betri upplýsingar, það var víst batterý í eldri bílunum en ekki þessum, gaurinn þarna uppfrá sagði að ég þyrfti sennilega að skipta út rafmagnsplötunni sem er í mælaborðinu, gæti kostað 4-10 þús ný, kannski til á partasölu.. en á móti kemur að km mælirinn er innbyggður í mælaborðið og ef ég færi í þá aðgerð þá fengi ég sennilega allt aðra km stöðu á bílinn... nema að einhver þarna úti eigi mælaborð úr svona bíl með akstur upp á 160 þús. og fyrst mælaborðið var komið úr skipti ég um allar 15-20 perurnar í því þar sem sumar voru búnar og aðrar voru orðnar svartar! nú er bara að reyna að finna tíma til að kíkja á skottið, er einhver með smá info um það eða verð ég bara að rífa þetta í sundur og sjá hvað kemur í ljós? |
Author: | saemi [ Fri 21. Jan 2005 17:28 ] |
Post subject: | |
Tékkaðu líka á lögninni með vinstri opnunarjárninu. Rafmagnsvírarnir þar eiga til að nuddast í sundur og valda veseni. |
Author: | Duce [ Fri 21. Jan 2005 18:24 ] |
Post subject: | |
centralið var með vesen hjá mér endalaust ... reif upp víralögnina v. opnunarjárnið í skottinu og allt í sundur og vitleysu þar.... lóðaði og krumpuhólkaði pakkann og það var allt í gúddí eftir það |
Author: | Höfuðpaurinn [ Sat 22. Jan 2005 14:37 ] |
Post subject: | |
takk, kíki á það þegar ég hef tíma... |
Author: | Bjarki [ Sat 22. Jan 2005 20:49 ] |
Post subject: | |
prófaðu þetta fyrst: http://www.bmwe34.net/E34main/Maintenan ... citors.htm með samlæsingarnar þá var ég með sama vandamálið á e32 en það er langt síðan og ég náði aldrei að laga það. Myndi ekki sætta mig við þetta núna. |
Author: | Höfuðpaurinn [ Sun 13. Feb 2005 15:51 ] |
Post subject: | |
jæja ég tók mig til fyrir svona mánuði síðan og skellti þjófavörn og fjarstýringu á samlæsingar og þetta vesen var ennþá. svo núna í vikunni hætti að virka að læsa honum tvisvar með fjarstýringunni, virkaði bara með lyklinum, þannig að ég tók mig til í dag og kíkti á þetta í skottinu og í bílstjórahurðinni, datt einna helst í hug að það væru þessir tveir mótorar, baðaði þá báða í wd40 og komst að því að þegar ég ýtti takkanum á skottinu eins og langt inn og hægt er, þá tikkar samlæsingin (stundum bara læsist hann eða læsist og opnast aftur). nennti nú ekki að rífa mótorona úr en eftir þessa aðgerð þá læsir hann núna í annaðhvert skipti sem ég nota fjarstýringuna og í hin skiptin þarf að læsa tvisvar til að hann læsist.. ![]() svo ein spurning svona í lokin, hvar eru nemarnir sem skynja hvort hurð er opin/lokuð? hann er nefnilega bilaður í hægri afturhurðinni. |
Author: | Wolf [ Sun 13. Feb 2005 23:06 ] |
Post subject: | . |
Það eru pínulítill tittur/rofi í unitinu sem grípur hurðalæsinguna þegar þú lokar. Ef þetta er farið þá á Maggi í bílstart helling af þessu, annars minnir mig líka að þetta sé hræódýrt í bogl (ef það er þá til ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |