Page 1 of 1
Þjöppun vs. plana hedd????????????????

Posted:
Fri 21. Feb 2003 14:10
by Alpina
Er einhver sem veit að ef Mótor td. m-20 2.5L og er með
8.8 þjöppu og heddið er planað þ.e.a.s. venjulegt.
Hvað hækkar þjappan mikið???????????
NOTA-BENE Ég nenni ekki að fá nein bullsvör
Eingöngu ,, ef menn vita eitthvað um svona mál..
Með fyrirfram þökk.
Sv.Hþ

Posted:
Fri 21. Feb 2003 14:20
by GHR
Ég veit svona sitthvað um vélar

, en þarna ertu að biðja um svo nákvæma tölu. Það er ekki hægt að vita þetta nákvæmlega nema hafa gert þetta. En ég skal lofa þér að þjappan hoppar ekki mjög hátt, fer ekki yfir 9.5. Allavega ekki ef tekið er normal plönun af heddinu (c.a 1mm +- 0,3)
Af hverju hvað ertu að spá???

Posted:
Sun 23. Feb 2003 19:23
by Siggip
Hvað er að því að auka þjöppuna,??

Posted:
Fri 28. Feb 2003 21:04
by Atli Camaro
Sælir
Ef heddið er bara planað til að slétta þéttiflötin þá hækkar þjappan svo lítið að það er ekkert til að tala um.En ef mikið er tekið af heddinu getur þjappan hækkað eitthvað en svo það fari að skipta einhverju máli þarf að taka virkilega mikið af heddinu,svo mikið að ventlar færu að rekast í stimpla,aukin hætta á sprungum í heddinu og svo framvegis.
Kveðja,

Posted:
Sat 01. Mar 2003 22:16
by gstuning
á M20B25 vélinni þá eru djúp ventla sæti í stimplunum þannig að þeir leyfa hærri þjöppu,
Einnig ef þú plannar heddið þá slakknar svo mikið á tímarreiminni að knastása tíminn verður rangur, og power kúrvan færrist neðar og þú tapar high end powerinu,
Að taka 3mm af heddinu eykur þjöppuna slatta, því að það er bara 75mm slaglengd í vélinni, en það slakknar aðeins of mikið á reiminni til að það sé safe,
eina safe eru stimplar með hærri þjöppu og dýppri ventla sætum