bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
e34 hurðavesen í kulda https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=8577 |
Page 1 of 1 |
Author: | Beorn [ Thu 16. Dec 2004 01:00 ] |
Post subject: | e34 hurðavesen í kulda |
Jæja nú er bílstjórahurðin farin að stríða mér eins og í fyrra þegar það var kalt úti. Vandamálið er að hurðin lokast ekki þegar hún er köld, þannig að ég þarf að halda í hana á meðan ég keyri eða bíða í 5 mín með að fara af stað, því hurðin lokast alveg þegar bíllinn er búinn að hita sig í smá stund. Svosem alveg hægt að lifa með þessu vandamáli, en kæmi sér samt vel ef einhver kynni brögð við þessu. |
Author: | Bjarki [ Thu 16. Dec 2004 01:13 ] |
Post subject: | |
ég myndi smyrja allt sem hreyfist í læsingunni og þá ætti vandamálið að vera úr sögunni, inn í læsinguna og taka hurðaspjaldið af og smyrja á þetta allt. Verður samt að vera feiti, eitthvað sem lekur ekki í burtu og heldur smureiginleikum í langan tíma. Ég nota alltaf einhverja feitu í spray-brúsa frá Wurth sprautast þunnt og smýgur um allt en verður svo að feiti. Náttúrlega margt annað sem gerir sama gagn. |
Author: | Twincam [ Thu 16. Dec 2004 02:30 ] |
Post subject: | |
Bjarki.. heldurðu að þú getir grafið upp heitið á þessarri feiti? Því að Poloinn gerir í því að læsa mig úti... s.s. það bara er eins og hurðar"húnninn" ýti engu til. Hvorki að innan né utan ![]() En lagast svo alltaf þegar bíllinn er búinn að ganga smá og hitna. Bara orðinn hundleiður á að þurfa að klöngrast inn um afturhurðina og klifra frammí... tala nú ekki um ef maður gleymir einhverju og fattar það eftir að maður er kominn frammí.. ![]() ![]() |
Author: | oskard [ Thu 16. Dec 2004 03:09 ] |
Post subject: | |
ég hef alltaf notað "Chain Lube" í svona aðgerðir man nú ekki frá hverjum það er en mig minnir að þetta fáist á esso ![]() |
Author: | Lindemann [ Thu 16. Dec 2004 03:21 ] |
Post subject: | |
Twincam wrote: Bjarki.. heldurðu að þú getir grafið upp heitið á þessarri feiti? Því að Poloinn gerir í því að læsa mig úti... s.s. það bara er eins og hurðar"húnninn" ýti engu til. Hvorki að innan né utan
![]() En lagast svo alltaf þegar bíllinn er búinn að ganga smá og hitna. Bara orðinn hundleiður á að þurfa að klöngrast inn um afturhurðina og klifra frammí... tala nú ekki um ef maður gleymir einhverju og fattar það eftir að maður er kominn frammí.. ![]() ![]() held að það sé ekki sama vandamálið í vw, held það sé bara útaf læsingunum, þær eru alltaf til vandræð í frosti :S |
Author: | íbbi_ [ Thu 16. Dec 2004 08:59 ] |
Post subject: | |
ég get aldrei lokað afturhurðunum í frosti |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |