bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hvað ætli sé sniðugast í Navigation? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=8557 |
Page 1 of 2 |
Author: | bebecar [ Tue 14. Dec 2004 11:37 ] |
Post subject: | Hvað ætli sé sniðugast í Navigation? |
Ég hef verið að velta fyrir mér hvað sé gáfulegasta leiðin í aftemarket GPS navigation tólum... á maður að kaupa sér eitthvað í bílinn eða á maður að fá eitthvað sem maður getur notað við tölvuna og haft svo hvorutveggja í bílnum? Ég myndi gjarnan þiggja ábendingar frá þeim sem hafa einhverja reynslu af svona tólum þar sem kann bara að nota göngu GPS! |
Author: | Kull [ Tue 14. Dec 2004 12:18 ] |
Post subject: | |
Ég held að öll svona kerfi í bílinn séu nokkuð dýr en ef þú átt laptop þá geturu notað forrit eins og MS Autoroute, það á að vera hægt að tengja GPS tæki við tölvuna og þá sýnir forritið hvar þú ert. |
Author: | bebecar [ Tue 14. Dec 2004 12:21 ] |
Post subject: | |
Kull wrote: Ég held að öll svona kerfi í bílinn séu nokkuð dýr en ef þú átt laptop þá geturu notað forrit eins og MS Autoroute, það á að vera hægt að tengja GPS tæki við tölvuna og þá sýnir forritið hvar þú ert.
Já, mig grunaði að það væri ódýrasta leiðin, maður keyrði allavega framhjá ansi mörgum bílum með kort á skjánum í lap toppnum fyrir helgi. Það er hægt að fá innbyggt í CD og útvarp frá Becker fyrir sirka 80 þús kall... tími því nú ekki, en ég gæti vel splæst 20 þús í GPS tæki við tölvuna og notað hana.... Hvað eru jeppa karlarnir hér heim að nota t.d? |
Author: | Bjarki [ Tue 14. Dec 2004 12:43 ] |
Post subject: | |
Ég er búinn að vera að pæla frekar mikið í þessu. Það eru nokkur góð forrit fyrir windows 98/2k/xp til og þá þarf maður ekki annað en usb gps móttakara og spenni til að tengja fartölvu í bílinn. Ekkert voðalega dýrt ef maður á netta fartölvu. Einnig hægt að kaupa útvarpstæki með innbyggðu leiðsögutæki stærri skjár kannki eitthvað gps loftnet og svo koma örvar og rödd. Það er náttúrlega ekkert voðalega handhægt til að ferðast með á milli bíla. Ég er núna staðráðinn í því að fá mér palm eða lófatölva og gps móttakara á þessa vél og svo leiðsöguforrit. Kostar svona 300-400Euro sýnist mér. Þarna er maður líka kominn með mp3 spilara og þetta er einstaklega handhægt, sogskál í rúðuna og lítill litaskjár með örvum eins nálægt framrúðunni og hægt er. Fartölva liggur kannski í framsætinu og getur skapað hættu. Sennilega mikilvægt að velja rétta forritið sem hefur skýrar örvar og ég myndi vilja geta haft möguleika á rödd. Þetta er græja sem ætti að borga sig upp frekar fljótt ef maður er eitthvað á ferðinni erlendis. Aldrei að líta á kort, aldrei að tapa tíma í að leita að stöðum, aldrei að stoppa og staðsetja sig, aldrei spyrja til vega. Ég er alltaf að skoða þetta á www.ebaymotors.de undir Auto-Hi-Fi & Navigation > Navigation, CDs & DVD-Player |
Author: | gdawg [ Tue 14. Dec 2004 18:31 ] |
Post subject: | |
Þegar ég hef verið að þvælast um með félögum mínum í London, þá höfum við notast við hand held GPS, og hlaðið inn waypoints og svo kannski tvem þrem korta hlutum í kringum staðinn sem við erum að leita að. Annars er multimap.com líka nokkuð solid! ![]() Ég myndi persónulega ekki splæsa í navigation sem er fast í bílnuml, frekar unit sem er hægt að færa milli bíla. Svo er spurning að fá sér bara nýjan síma með GPS... |
Author: | Þórir [ Tue 14. Dec 2004 19:37 ] |
Post subject: | |
Ég pældi einmitt soldið í þessu áður en ég fór í bíltúr um norður Ítalíu. Ég keypti mér nett map-tæki sem hægt er að hlaða inn kortum og drasli eftir behag, allt eftir því hvert maður er að fara. Mér fannst persónulega fínt að aka eftir tækinu, en skjárinn er auðvitað ekki mjög stór, svo, ef vill er lítið mál að tengja það við tölvu. Tækið mitt er Garmin Legend og var þokkalega ódýrt, eða 35.000 kr. í fríhöfninni, en með því fylgdi nákvæmt Íslandskort, sem kostar 15.000 kall. |
Author: | bebecar [ Tue 14. Dec 2004 21:36 ] |
Post subject: | |
Eitthvað þarf að gera... það gekk fínt að keyra þangað til maður var kominn á síðustu metrana að finna göturnar, þá var maður alveg lost... Ég fór með fimm tíma fyrir helgina í að villast þegar ég var loksins "nánast" kominn á staðinn ![]() |
Author: | oskard [ Tue 14. Dec 2004 21:41 ] |
Post subject: | |
það getur verið killer að villast svona man þegar ég var að keyra um ítalíu þá var ég kominn í róm og var að leita að hótelinu og ég var enhverja 2 tíma að finna það ![]() ![]() |
Author: | bebecar [ Tue 14. Dec 2004 22:47 ] |
Post subject: | |
oskard wrote: það getur verið killer að villast svona man þegar ég var að keyra um ítalíu þá var ég kominn í róm og var að leita að hótelinu og ég var enhverja 2 tíma að finna það
![]() ![]() Það er nú málið, ég er búin að lenda í þessu trekk í trekk, ekkert mál að finna borgina en svo þegar inn í hana er komið þá má ekki taka eina ranga beygju miðað við leiðbeiningar og þá er maður algjörlega lost og það KOSTAR gífurlegan tíma! Keyrði til Hamborgar á fimmtudaginn síðasta og allt í lagi með það... en bara að keyra út úr borginni (og ég var ekki villtur og lítil umferð) tók rúman klukkutíma ![]() |
Author: | bjahja [ Tue 14. Dec 2004 23:42 ] |
Post subject: | |
Af hverju ekki að fara í næstu bensínstöð þegar maður er viltur og kaupa svona gamaldags já, kort ![]() |
Author: | Bjarki [ Tue 14. Dec 2004 23:52 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Ég fór með fimm tíma fyrir helgina í að villast þegar ég var loksins "nánast" kominn á staðinn ![]() þá ertu ekki ratvís ![]() bebecar wrote: Keyrði til Hamborgar á fimmtudaginn síðasta og allt í lagi með það... en bara að keyra út úr borginni (og ég var ekki villtur og lítil umferð) tók rúman klukkutíma
Þetta á ekki að vera hægt í Þýskri borg! Kíktu á stórt kort af þýskalandi og finndu út í hvaða átt þú ert að fara finndu stóra borg í sömu átt og tékkaðu á númerinu á hraðbrautinni. Keyrði svo aðalgötur og eftir smá stund þá finnur þú merki sem á stendur C fylgdu því merki og ALLTAF á þeirri leið þá eru mörg skilti með bláa hraðbrautarmerkinu fylgdu því og svo þegar þú kemur út á hraðbrautina þá veistu í hvaða átt þú átt að fara (stóra borgin) og á hvaða hraðbraut (númerið). Pakki á ebay með GPS USB móttakara og forriti með rödd kostar minna en 150Euro. Þýskt vegakerfi og merkingar í Þýskalandi eru snilld það þarf bara að kunna á þetta og kunna að plana ferð. Skrifa hjá sér veganúmer stefnur og númer á þeim stöðum þar sem á að aka útaf. Vanalega er þetta lítill snepill og hann kemur manni í borgina eða bæinn og þá tekur maður upp venjulegt kort, staðsetur sig og keyrir í götuna. Stundum þarf að staðsetja sig nokkrum sinnum ![]() |
Author: | gdawg [ Wed 15. Dec 2004 00:00 ] |
Post subject: | |
Quote: Af hverju ekki að fara í næstu bensínstöð þegar maður er viltur og kaupa svona gamaldags já, kort
Þetta er reyndar mjög góður punktur, þessi navigation kerfi flýta fyrir, í flestum tilfellum, en það er samt ekkert sem er betri "navigator" en almennilegur (karl)maður með kort! (var sannað í 5th gear!!) |
Author: | oskard [ Wed 15. Dec 2004 00:15 ] |
Post subject: | |
Það var kvenmaður á kortinu hjá mér.. það gæti útskýrt þetta ![]() ![]() |
Author: | Alpina [ Wed 22. Dec 2004 08:54 ] |
Post subject: | |
Á Philips CARIN kerfi með litaskjá ,,, sem keyrir á VDO kerfinu (( VDO keypti Philips)) og EURO map ....... NL--L--B--D--DK--S--I--A--CH--E --UK--IRLAND Allt með öllu...... gefðu tilboð |
Author: | saemi [ Wed 22. Dec 2004 10:41 ] |
Post subject: | |
![]() Þetta er málið. Það er ekki spurning. Ég ætla að fá mér svona tæki. Svo getur maður líka notað þetta náttúrulega sem mp3 og soleizzz. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |