Page 1 of 2

InPro Angel eyes

PostPosted: Mon 06. Dec 2004 14:50
by IceDev
Ég var að athuga með InPro fyrir E36 á bimmerforums.com og þar sá ég að þau voru ekki að fá neina súper dóma, voru alltaf að lenda í móðu og svona.

Ég hafði hugsað mér um að kaupa þannig upp og spyr ykkur sem að eruð með svona eða hafið reynslu af þessu hvernig þetta hafi reynst ykkur?

Með fyrirfram þökkum
Óskar

PostPosted: Mon 06. Dec 2004 15:31
by Einsii
ég mæli hiklaust með Hella.. og mindi ekki setja fyrir mig verðmuninn.. þau eru einfaldlega mikið betri og flottari (nema ef bíllinn þinn er svartur þá looka bláu hringirnir ekki jafn vel)
Image
Image
þetta er bíllinn hanns helga steinars (Helgii)

PostPosted: Mon 06. Dec 2004 18:48
by bjahja
Það er alveg rétt hjá þér, inpro eru ekki búinn að fá góða dóma. En hinsvegar eru aðrar týpur svo sem ZKW og fleirr rán rándýrar, við erum að tala um einhvern 70-80k að minnsta kosti hingað komið.
Mér persónulega finnst hringirnir vera eithvað svo litlir á Hella ljósunum en það eru náttúrlega mjög góð ljós....

PostPosted: Mon 06. Dec 2004 18:58
by vallio
inpro ljósin eru MEGA góð sko..... ekkert að marka þessa dóma, nema að þú viljir eyða svona 100 þús kalli í þetta.
móða :roll: , það kemur líka móða í hella ljósin og flest ljós bara, en hún fer líka jafn hratt og hún kom.....
en ég er sammála einari... hella ljósin GEÐVEIK nema þá einna helst ef bíllinn er svartur (og þar sem minn er svartur þá hætti ég við hella á sínum tíma)...........

svo er þetta ekkert hrikalega ljótt heldur :D
Image

fleiri myndir á
www.cardomain.com/id/vallio

PostPosted: Mon 06. Dec 2004 20:19
by Jónas
GEÐVEIKUR bíll Vallio.. ;)

Hvað kosta þessi Inpro augu?

PostPosted: Mon 06. Dec 2004 20:25
by Jss
Jónas wrote:GEÐVEIKUR bíll Vallio.. ;)

Hvað kosta þessi Inpro augu?

In-pro ljós fást í B&L, skal pósta því á morgun hvað þau kosta.

PostPosted: Mon 06. Dec 2004 20:37
by Kristjan
Jss wrote:
Jónas wrote:GEÐVEIKUR bíll Vallio.. ;)

Hvað kosta þessi Inpro augu?

In-pro ljós fást í B&L, skal pósta því á morgun hvað þau kosta.

Þau fást í Tækniþjónustu bifreiða einnig og kosta 37600 íslenskar nýkrónur.

PostPosted: Mon 06. Dec 2004 21:28
by IceDev
33.840 Þúsund með kraftsafslætti

PostPosted: Tue 07. Dec 2004 03:31
by vallio
Jónas wrote:GEÐVEIKUR bíll Vallio.. ;)

Hvað kosta þessi Inpro augu?

takk fyrir það :wink:

þetta er komið niður í að vera einhversstaðar í kring um 40 þús í dag......

PostPosted: Tue 07. Dec 2004 09:38
by Kristjan
Ég er með inpro glær stefnuljós og mér finnst þau koma mjög vel út, yngja bílinn um 7 ár í það minnsta. Ég stefni á angel eyes líka en þau eru á löngum shopping lista þar sem felgur eru efstar.

PostPosted: Tue 07. Dec 2004 10:38
by Jss
Verðin á In-Pro Angel eyes ljósunum í B&L

Ljósin kosta 33.500 kr. með svörtum botni, 30.150 kr. með BMWKraftsafslætti.

Ljósin kosta 42.600 kr. með krómuðum botni, 38.340 kr. með BMWKraftsafslætti.

PostPosted: Thu 09. Dec 2004 21:43
by Bimmarinn
Ég keypti mín í TB og það kom móða, það var nóg að leyfa loftinu að leika um þau á heitum degi og loka þeim svo aftur, eftir það var ekkert vesen, og þau voru með krómbotninum.

PostPosted: Fri 10. Dec 2004 09:08
by Einzi
Ég veit nú ekkert hvernig þessi ljós eru svo sem eða samsetning á þeim en hvað með það.

Vitum allavega að kalt loft getur borið minni raka en heitt. Því þegar loftið er kælt kemur að þeim punkti (daggarmark) þar sem það getur ekki borið rakann lengur og því þéttist hann.

Segjum að þú lokir þínu ljósi heima í stofu þegar og setur það í bílinn. Svo þegar glerið kólnar um kvöldið eða á köldum degi kólnar loftið, sem að því liggur niður inni í ljósinu, niður fyrir daggarmark og raki þéttist á glerinu sem móða. Það er bara málið að skríða ofan í frystiskistu og loka ljósinu þar, ekki satt ;)

Einzi

PostPosted: Fri 10. Dec 2004 09:52
by jonthor
Einzi wrote:Ég veit nú ekkert hvernig þessi ljós eru svo sem eða samsetning á þeim en hvað með það.

hehe, gæti alveg virkað, gerandi ráð fyrir að þau séu alveg rakaþétt!

PostPosted: Fri 10. Dec 2004 10:13
by gstuning
jonthor wrote:

Svo er líka lítið mál að bora tiny gat á ljósin til að hleypa loftinu inn og út
þá er þetta ekkert vandamál