bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Nokkrar spurningar
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=8365
Page 1 of 1

Author:  force` [ Mon 29. Nov 2004 19:22 ]
Post subject:  Nokkrar spurningar

Langar að vita hvort að það hafi gert eitthvað merkilegt annað en að stilla vélina af að fara með bílinn í vélarstillingu, fann fólk fyrir eyðsluminnkun, eða eitthvað svona sem var áberandi öðruvísi ?

Svo annað, hefur einhver lent í stífluðu pústi ?
Hvaða breytingu hafið þið orðið varir við varðandi opnun á pústi?
annað en hið augljósa - hljóðmengun, en ég hef engar áhyggjur af því eins og er.

Author:  Alpina [ Mon 29. Nov 2004 22:58 ]
Post subject: 

Hvarfa-kútarnir geta stíflast og ==== BANG ,, það gerðist hja Dr. E31

Author:  BMW3 [ Mon 29. Nov 2004 23:03 ]
Post subject: 

ég var með corollu si og lét setja undir hann opið pust svokallað kraftpúst hann var ekkert sneggri upp það eina sem ég fann fyrir var það að hann eyddi meiru

Author:  Haffi [ Mon 29. Nov 2004 23:05 ]
Post subject: 

þú keyrðir bara meira eins og fáviti því þér fannst þú vera á miklu öflugri bíl.

KRAFTPÚST mehoauehoau

Author:  BMW3 [ Mon 29. Nov 2004 23:06 ]
Post subject: 

Haffi wrote:
þú keyrðir bara meira eins og fáviti því þér fannst þú vera á miklu öflugri bíl.

KRAFTPÚST mehoauehoau


hehe afgúrat og plús það að maður fór frekar verr með bílinn

Author:  gunnar [ Tue 30. Nov 2004 00:00 ]
Post subject: 

Guð minn góður ekki setja samasem merki milli Si rollu og BMW 750.

Ég held að hún force sé ekki að fara setja opið púst undir hjá sér heldur bara að taka hvarfakútana.

Var það ekki hann zazou sem átti jaggann, hann sagði mér um daginn að sinn bíll með hvarfa missti 30 hö á því. :shock:

Author:  hjortur [ Tue 30. Nov 2004 08:54 ]
Post subject: 

Áður en ég þroskaðist og keypti bíll, þá átti ég mmc colt.
Hvarfakúturinn í honum var orðinn fullur af drullu og allt inn í honum bráðnaði og reyndi að fara út um púströrið. Bíllinn eðlilega vann ekki rétt, vinnslan í honum minnkaði smám saman og að lokum gekk hann ekki neitt.

Eftir að ég hreinsaði út úr hvarfakútnum, þá er ég ekki frá því að maður hafi fundið einhvern mun á afköstum. Hvort að þetta voru ímyndunarhestöfl eða raunveruleg hestöfl veit ég ekki.

Maður hefur hinsvegar heyrt af því að nýrri bílar með flóknum vélarkerfum séu ekki að vinna rétt ef hvarfakúturinn er tekinn.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/