bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hámarkshraði..
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=8260
Page 1 of 3

Author:  BMW_Owner [ Sat 20. Nov 2004 16:36 ]
Post subject:  Hámarkshraði..

er hámarkshraðinn í bmw e-36 316i 92 örugglega 191km/klst mér fannst hann helv. fljótur upp í 170km/klst?? er það talvan í honum sem stöðvar hann í 191 eða er það bara MAX!

BMW_Owner :burn:

Author:  Kombo [ Sat 20. Nov 2004 16:40 ]
Post subject: 

ég er á bmw 97 árgerð 320 og er búin að setja hann uppí 220 kmh á kringlumýrarbraut :D

Author:  BMW_Owner [ Sat 20. Nov 2004 16:59 ]
Post subject: 

ja mér finnst þetta ótrúlegt hann sveif í 170km/klst á nó time :?

BMW_Owner :burn:

Author:  bebecar [ Sat 20. Nov 2004 17:01 ]
Post subject: 

Kombo wrote:
ég er á bmw 97 árgerð 320 og er búin að setja hann uppí 220 kmh á kringlumýrarbraut :D

ERTU KLIKK :shock: :?: :?: :?:

Author:  Kombo [ Sat 20. Nov 2004 17:05 ]
Post subject: 

já samkvæmt síðustu geðlæknis rannsóknum er ég það, já :lol:

Author:  bebecar [ Sat 20. Nov 2004 17:08 ]
Post subject: 

Kombo wrote:
já samkvæmt síðustu geðlæknis rannsóknum er ég það, já :lol:

Ég er ekki að grínast, ertu virkilega klikk?... þetta nú ekki bara glæpsamlega háskalegt heldur líka heimskulegt, ekki eitthvað til að monta sig af heldur eitthvað til að skammast sín fyrir :evil:

Author:  Kombo [ Sat 20. Nov 2004 17:14 ]
Post subject: 

þetta var nú reyndar þegar ég var nýkominn með prófið en það afsakar ekki neitt en reyndar kann ég ekki að skammast mín í umferðinni ég er búin að gera allt sem hægt er að gera á bíl 220kmh er ekki það hraðast sem ég hef keyrt ég það er reyndar 235kmh á krísuvíkurveginum en í dag keyri ég ekki hraðar en 80 100 kmh í dag :)

Author:  saemi [ Sat 20. Nov 2004 17:21 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Kombo wrote:
já samkvæmt síðustu geðlæknis rannsóknum er ég það, já :lol:

Ég er ekki að grínast, ertu virkilega klikk?... þetta nú ekki bara glæpsamlega háskalegt heldur líka heimskulegt, ekki eitthvað til að monta sig af heldur eitthvað til að skammast sín fyrir :evil:

Ég er nú bara hjartanlega sammála Ingvari. :?

En varðandi 316i, þá er ég viss um að hann getur ekki meira en það. Bílarnir eru yfirleitt gíraðir þannig að þú nærð hámarkssnúning áður heldur en að bíllinn hættir að bæta við sig í hröðun.

Author:  fart [ Sat 20. Nov 2004 17:22 ]
Post subject: 

:imwithstupid: :oops:

Author:  bebecar [ Sat 20. Nov 2004 17:29 ]
Post subject: 

Kombo wrote:
þetta var nú reyndar þegar ég var nýkominn með prófið en það afsakar ekki neitt en reyndar kann ég ekki að skammast mín í umferðinni ég er búin að gera allt sem hægt er að gera á bíl 220kmh er ekki það hraðast sem ég hef keyrt ég það er reyndar 235kmh á krísuvíkurveginum

Ertu ennþá MEÐ bílpróf??? Að mínu mati ætti þú ekki að hafa það, það er óhuggulegt að lesa þetta frá þér og það eina sem maður hugsar er hvort þú drepir einhvern annan áður en þú drepur sjálfan þig [-X

Þú verðu að vaxa uppúr þessu fljótlega annars endar þetta ílla. Ég veit um nokkur dæmi þar sem menn keyrðu sig fljótlega til óbóta eða dauða og aðstandendur jafna sig aldrei á því.

Ekki taka þessu ílla, en hugsaðu aðeins um hvað þú ert að gera. Þó þú haldir annað þá hefur þú enga stjórn á aðstæðum á þessum hraða í miðri Reykjavík eða innan um aðra umferð.
Sportið snýst ekki eingöngu um hraða... við höfum flestir hér keyrt mjög hratt en veljum hinsvegar stað og stund til þess og stofnum engum öðrum í hættu með því athæfi.

Svona gerir maður ekki með fólk í bílnum hjá sér og alls ekki INNANBÆJAR!

Þannig að reyndu nú að hafa hemil á þér og fá útrás á skynsmalegum stöðum :wink:

Author:  BMW_Owner [ Sat 20. Nov 2004 17:39 ]
Post subject: 

sæmi ertu að segja að bíllinn komist hraðar en 191 t.d með vindinn með sér eða niður brekku eða :wink: ég treysti bílnum ekkert hraðar en 170 með 1 slitinn spindil en miðað við hvað hann skreið í 170 þá finnst að hann ætti ekkert mál að bæta við sig 20 -30km/klst viðsig??

BMW_Owner :burn:

Author:  saemi [ Sat 20. Nov 2004 18:27 ]
Post subject: 

Ég er nokkurn vegin að segja það já. En til þess þá verður þú að kúpla frá svo að vélin hætti að snúast því það er snúningur hennar sem takmarkar hraðan. Og um leið og þú kúplar frá, þá þarf brekkan að vera mjög brött til að bíllinn auki við sig hraðann, því loftmótstaðan er orðin svo mikil.

Og já, ég trúi því vel að hann ætti að geta bætt svona 21 við sig í viðbót við 170.

Author:  Þórir [ Sat 20. Nov 2004 18:55 ]
Post subject: 

BMW_Owner wrote:
sæmi ertu að segja að bíllinn komist hraðar en 191 t.d með vindinn með sér eða niður brekku eða :wink: ég treysti bílnum ekkert hraðar en 170 með 1 slitinn spindil en miðað við hvað hann skreið í 170 þá finnst að hann ætti ekkert mál að bæta við sig 20 -30km/klst viðsig??

BMW_Owner :burn:

Jahá. Hversvegna heldurðu að það sé sett út á ónýta spindla í skoðun? Heldurðu að það hafi eitthvað með ökueiginleika bílsins að gera?

Author:  fart [ Sat 20. Nov 2004 19:30 ]
Post subject: 

Sá yðar er syndlaus er, kasti fyrsta steininum...

Ég hef oft keyrt á 200+ innanbæjar, gerði það á mínum yngri árum. Mér finnst það s.s. ekki vera það alvarlegasta sem menn gera í umferðinni.

T.d. það að keyra fullur er að mínu mati alvarlega en að gefa í alsgáður á íslenskri hraðbraut.

Að keyra á 60-80 í 30zone (þröngu hverfi) finnst mér líka alvarlegra.

Að keyra með farþega án beltis, og jafnvel BÖRN laus í bílum ætti að vera ævilöng svifting.

En... með árunum fer maður að hugsa öðruvísi, og nú fer maður ekki jafn auðveldlega yfir 200 þó maður hafi græjuna í það.

Ósnotur maður
er með aldir kemur,
það er best að hann þegi.
Engi það veit
að hann ekki kann,
nema hann mæli til margt.
Veit-a maður
hinn er vætki veit,
þótt hann mæli til margt.

Ósnjallur maður
hyggst munu ey lifa,
ef hann við víg varast.
En elli gefur
honum engi frið,
þótt honum geirar gefi.

Author:  bebecar [ Sat 20. Nov 2004 19:54 ]
Post subject: 

fart wrote:

Ég er alveg sammála þessu, það er til ýmislegt alvarlegra eins og að keyra fullur en það sama á við að þá er dómgreindin af einhverjum ástæðum skert....

PS, ég hef aldrei keyrt nálægt þessum hraða innan bæjar, mesta lagi slefað yfir 120 í nokkrar sekúndur, efa það reyndar því ég er alltaf svo hræddur um að fá sekt!

En líklega er hættulegast af þessu öllu að keyra of hratt í 30 Zone sem margir gera.

Bottom line... 220 km á Kringlumýrarbraut er KREISÍ, sama hver gerir það!

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/