bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hversu mörg hestöfl þarf Stefán að hafa til að taka E60 M5
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=8104
Page 1 of 2

Author:  gstuning [ Sun 07. Nov 2004 18:54 ]
Post subject:  Hversu mörg hestöfl þarf Stefán að hafa til að taka E60 M5

Ég er forvitinn að vita hvað menn telja vera rétt í þessu máli

Bílinn hans stefán er 1300kg
M5 er 1755kg og 507hö = 3.46kg

ég veit að strax vilja menn segja traction vandamál í E30 og það er rétt
það er mikið issue en gefum okkur líka að það sé variable boost í bílnum hans stefáns til að minnka kraft svo að hann spóli ekki svo, og það er hægt að stilla stefáns bíl til að vera með 0° halla á afturdekkjunum

Allaveganna, ég er frekar forvitin að sjá hvað menn segja um þetta

Author:  Alpina [ Sun 07. Nov 2004 19:01 ]
Post subject: 

ok..... en ekki má gleyma L.C. sem er það sem virðist skipta máli ef um herfilegt afl sé að ræða

Author:  gstuning [ Sun 07. Nov 2004 19:14 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
ok..... en ekki má gleyma L.C. sem er það sem virðist skipta máli ef um herfilegt afl sé að ræða


Erum við að tala um launch control??
Við skulum segja að það sé coverað í báðum bílum
:)

Author:  Alpina [ Sun 07. Nov 2004 19:19 ]
Post subject: 

Forvitni er ekki það sem skiptir máli..... að mínu mati,,
Ef bíllinn hjá >> S....325<< er að skila 400 ps+ þá segir sig sjálft að öll stærðfræði í afltölum er bílnum hans í hag eftir að komið er af stað.

(((((( AUGLJÓSLEGA))))))))))))))))

Author:  fart [ Sun 07. Nov 2004 19:20 ]
Post subject: 

Veistu það Gunni að ég hef bara ekki hugmynd, en.. ég leyfi mér að efast um að meira að segja Race útgáfa af E30 M3 myndi eiga séns í skrímslið.

Pældu í því að E60 M5 mun sennilega, þegar menn fara að prufa sig áfram, ná betri tíma í öllum testum en M3 CSL.

Þó svo að þið strákarnir séðu að gera flotta og mjög áhugaverða hluti þá erum við að tala um bíl sem er 507hestar, togar 500nm og snýst í 8250rpm, með Launch-Control, DSC sem leyfir spól og SMG3 mode 6 sem skiptir hraðar en við gætum skipt þó við værum á spítti.

Sko HÖ pr KG skiptir engu ef maður kemur því ekki rétt niður í jörðuna, það hef ég fundið á mínum 245 vetrarblöðrum.

En hafið þið ekkert áhyggjur af kassa eða kúplingu ef þið setjið 15psi inn á mótorinn?

En svo má ekki gleyma því að E60 kostar væntanlega í kringum 14mkr uppi í B&L (jafnvel meira) og fyrir það mætti kaupa ýmislegt, jafnvel nokkur stykki, fullan aðgang að þjónustumanni og dekk fyrir lífstíð, þannig að ég skil vel að þið hafið gaman af þessu. Rekstrinn á mínum kostar t.d. meira en rekstur á meðal jeppa (bensín, dekk, varahlutir o.s.frv.)

Author:  gstuning [ Sun 07. Nov 2004 22:30 ]
Post subject: 

fart wrote:
Veistu það Gunni að ég hef bara ekki hugmynd, en.. ég leyfi mér að efast um að meira að segja Race útgáfa af E30 M3 myndi eiga séns í skrímslið.

Pældu í því að E60 M5 mun sennilega, þegar menn fara að prufa sig áfram, ná betri tíma í öllum testum en M3 CSL.

Þó svo að þið strákarnir séðu að gera flotta og mjög áhugaverða hluti þá erum við að tala um bíl sem er 507hestar, togar 500nm og snýst í 8250rpm, með Launch-Control, DSC sem leyfir spól og SMG3 mode 6 sem skiptir hraðar en við gætum skipt þó við værum á spítti.

Sko HÖ pr KG skiptir engu ef maður kemur því ekki rétt niður í jörðuna, það hef ég fundið á mínum 245 vetrarblöðrum.

En hafið þið ekkert áhyggjur af kassa eða kúplingu ef þið setjið 15psi inn á mótorinn?

En svo má ekki gleyma því að E60 kostar væntanlega í kringum 14mkr uppi í B&L (jafnvel meira) og fyrir það mætti kaupa ýmislegt, jafnvel nokkur stykki, fullan aðgang að þjónustumanni og dekk fyrir lífstíð, þannig að ég skil vel að þið hafið gaman af þessu. Rekstrinn á mínum kostar t.d. meira en rekstur á meðal jeppa (bensín, dekk, varahlutir o.s.frv.)


Mér heyrist á ykkur að það sé bara ekki hægt að ná svona M5


Ég þekki strák sem átti M50 turbo E30 bíl, hann var að skila 375hö/470nm
það er bara 30nm frá M5 og ennþá 400kg mismunur, og verður því powerbandið í svona túrbó bíl enn frekar meira en í M5 (þ.e togið/kg er mikið meira) og þar sem að það er meira tog per kg yfir bandið þá verður strax við það betra hö/kg powerband í þeim túrbó bíl

http://www.rmotorsport.com/2003/?sx=en.media
Hérna er hann,
núna fer E30 bílinn hans 11.23 í kvartmílunni og er 450hö með M5 twin turbo,, er það ekki sekúndu betur en nýji M5 bílinn.

http://tak.tky.hut.fi/Noppasoppaa/tampere/kii21.htm

Gírkassa hef ég séð þola 900hö+ þannig að nei,
en það yrði að skipta um kúplingu allaveganna

Author:  fart [ Mon 08. Nov 2004 07:44 ]
Post subject: 

Gunni þú veist nú betur en það. Fullt af bílum sem taka E60M5. Bílar sem eru betri á öllum tölum eru Enzo og CGT. Enda eru þeir 1300kg (give or take) og um og yfir 600 hestar.

En þurfum við ekki að skilgreina hvað við erum að tala um "taka". Ertu að tala um 0-100, 0-200, 0-300, 1/4 mílu, braut, Nurburgring, götuspyrnu, 100-200, 100-300?

ef við erum að tala um 1/4 mílu þá eru nú ansi margir sem fara míluna í kringum 10sek. En það væri gaman að sjá þá taka eina begju. á 200+´

I think you're missing the point. Bíllinn hans stebba verður (er) flottur (og þinn líka), en hann verður aldrei ofurbíll, sama hvað þú sturtar í hann af seðlum.

Author:  gstuning [ Mon 08. Nov 2004 09:33 ]
Post subject: 

Skilgreindu ofurbíl eins og þú sérð hann


Ég er bara að spá í því hvað bíllinn hans stefáns eða eins E30 með túrbó þyrfti til að geta "Tekið" E60 M5, þá er ég ekki að segja flengja eða stinga af, alls ekki það þarf ótrúlega hluti til að gera svoleiðis,

Ég held að þótt að E30 væri 500hö með bunch af fjöðrunar túningum að hann taki ekki endilega M5 á Nurburgring,


Það er enginn að fara reyna að gera e30 til þess eins að geta tekið svoleiðis bíl, það væri meira að segja auðveldar að gera E36 sem myndi taka E60 M5 eða þá M coupe sem tæki M5inn


E30 Turbo M5 mótor eða E30 745i mótor og það þarf ekki að spyrja að leikslokum, er það?? Uppá að geta hraðað bílnum hraðar en M5

þokkalega útlítandi E30 með fyrri vélinni væri hægt að gera fyrir undir 1.5mill, seinni undir 1mill, báðir 500hö og yfir 700nm,

Ég veit af einum bíl sem er 13,2sek í 200kmh, það er E30 með 350hö twin turbo 323i vél, smíðaður í danmörku , veit ekki hvort að þið hafið nokkurn tímann séð þann bíl en hann er bronsaður á litinn og það er til video of honum að taka E34 M5 í götumílu,

Image

Tjúnaðir bimmar í DK og meira um þennan bronsaða

Author:  fart [ Mon 08. Nov 2004 11:36 ]
Post subject: 

Fallegur þessi Bronsaði, gaman þegar menn tjúna vél án þess að missa sig í ruglið hvað útlit varðar.

Þetta eru rosalegur tölur, En þarf ekki að gera soldið mikið við bílinn hans Stebba til að ná svona vinnslu?

Það er endalaust hægt að segja Efmaðurmyndi, en það er líka hægt að tjúna fleiri bíla en E30, t.d. E39M5 með blásara upp í 650hesta (jafnvel ofar). Þannig að við erum komnir í hring er það ekki. Þessi umræða byrjaði þegar ég sagði að hann mætti vera með meira power, og að ég gæti tekið framúr honum. Sé ekki betur en það standi, nema Stebbi geri einhverjar breytingar. Erum við ekki sammála um það? Sko hvort ég get get tekið framúr einhverju er ekki endilega benchmark, bíllinn minn er t.d. ekki kvartmílugræja, meira að segja frekar slappur á mílunni nema ég fái mér UUC 500pundfeta kúplingu og taka af stað með látum á nýju PS2 dekkjunum mínum, því að traction verður vandamál með betri kúplingu.

Erum við ekki alveg í góðu með þessa umræðu? eðlileg skoðanaskipti o.s.frv.

...............................................
Ofurbíll:
Ef við höldum okkur við samtíman þá myndi ég segja að hann þyrfti að:
-vera kringum 4 sek í 100
-kringum 13 í 200
-ná 300+
-nurburg á -8sek (at least)
-exotic efni
-bremsur í stíl og hemlunarvegalengd stutt.
-Ekki á hvers mans færi að kaupa, limited útgáfa.

E60M5 fellur inn í þetta hvað flest varðar nema það síðasta... enda er hann OFUR-Saloon

Author:  gstuning [ Tue 09. Nov 2004 11:25 ]
Post subject: 

Ég er sammála þér að stefán þyrfti náttúrulega að gera eitthvað til að taka þig fart, og 15psi væri sko nóg til þess og

erum við ekki sammála um að 15psi væri nóg til að hanga í E60 M5,
þ.e 360hö, sé að flestir skrifuðu 400hö til að taka M5 og þetta er bara 40hö munur sem ætti að þýða að hann ætti að hanga,

Allaveganna, ég lenti í svolitlu skemmtilegu í gær,
spyrnu við glænýjan 645i :)
Það var leiðinlegt að hann kom alltaf á ferðinni nema eitt skiptið þá var hann við hliðinna á mér og gaf svo í, þá stóð ég mig nú betur, ef hann er auto þá skil ég vel hvers vegna hann var að hraða sér svona geðveikt þar sem að við vorum á hraða sem hentaði ekki fyrir annan gír eða 3gír hjá mér, en hans auto box er alveg sama :)

Þegar við tókum af stað á ljósum, ég fyrir aftann hann þá vorum við dead even þegar báðir voru komnir með grip,

Ljósa racið var svona, ég var í 1gír og við lögðum af stað á sama tíma, en þar sem að hann var að spóla þá var ég bíðandi fyrir aftann hann í 1gír , þegar hann loksins fór að hraða sér þá náði ég honum strax og við héldum sama bili þangað til að hann hætti,

specs segja 5,6 eða 5.8 í 100kmh, þannig að minns er vel sáttur við E30 bílinn minn,

Hann var með littlu stelpuna sína í bílnum og ég var með óskar og árna hjá mér,

1690kg (333hö) vs. 1410kg_cirka (???hö)
minns ætti að vera 282hö miðað við hö/kg tölur


http://www.kfzfakten.de/neuwagenkatalog/bmw_6er.htm

Author:  oskard [ Tue 09. Nov 2004 11:39 ]
Post subject: 

ekki má gleima að þú varst á vetrargeisladiskum (hva 185 dekkjum?) og sexan var á fullgrown sumardekkjunum sínum ;)

Author:  íbbi_ [ Tue 09. Nov 2004 13:34 ]
Post subject: 

mér finnst þetta nú alveg eins hrós fyrir sexuna :P

Author:  Jón Ragnar [ Tue 09. Nov 2004 13:46 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
mér finnst þetta nú alveg eins hrós fyrir sexuna :P



Sammála þessu 8)

Author:  gstuning [ Tue 09. Nov 2004 14:16 ]
Post subject: 

Ég myndi nú frekar segja hrós fyrir mig í vetrabúningnum með engin hjálpartæki mér til aðstoðar
á meðan margra millu sexan er með allt sem hægt er að ýminda sér :)

Author:  bebecar [ Tue 09. Nov 2004 15:03 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Ég myndi nú frekar segja hrós fyrir mig í vetrabúningnum með engin hjálpartæki mér til aðstoðar
á meðan margra millu sexan er með allt sem hægt er að ýminda sér :)


Og overweight að auki :wink:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/