Ég er að spá í að gera upp bremsucylenderana hjá mér. Ég er enn ekki alveg laus við titring og annar diskurinn hjá mér virðast verpast aftur og aftur. Þetta er það eina sem eftir er sem getur verið að!
Þið sem hafið gert þetta! Er hægt að ná cylenderinum úr án þess að pressa hann úr með lofti? Ég ætla að versla mér svona repair kit, en hef ekki aðgang að græjum til að pressa cylendernum út! Er ekki hægt að toga hann út? Hann virðist hreyfast tiltölulega auðveldlega, en greinilega ekki nóg.


