Ég var að gera við bletti á annari hurðinni á bílnum mínum og er búinn að gera alla undirvinnu og nú á bara eftir að sprauta. Ég er að spá hvernig ég á að gera þetta. Þ.e.a.s. hversu margar umferðir af málningu og svo hversu margar umferðir af glæru.
Svo er annað: Hvernig er best að þrífa bónið af lakkinu í kring? Ég nuddaði hurðina aðeins með massa til að ná því af, ætti það ekki alveg að duga?
Það væri fínt að fá að vita hvernig þið gerið þetta, skref fyrir skref.
Svo ef þetta fer illa... Á hvaða sprautuverkstæði ætti maður fara til að bjarga málunum?
Kv.
Júlíus






takið nú myndir og sýnið okkur hinum vitleysingunum 