bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Demparar
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=7405
Page 1 of 1

Author:  jonthor [ Mon 13. Sep 2004 09:27 ]
Post subject:  Demparar

Ég er að velta því fyrir mér að skipta um alla 4 demparana. Ég hef lítinn áhuga á neinum performance dempurum bara orginal er fínt. Ég ætla líklegast að skipta um dempara að aftan sjálfur og láta BMW verkstæðið skipta um að framan.

Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að varast við að gera þetta? Er betra að kaupa einhverja ákveðna dempara fyrir svona bíl sem er ekinn 150k? Ég skipti væntanlega um dempara að aftan fljótlega en dempararnir að framan eru í fínu lagi ennþá. Er betra að skipta um þetta allt í einu? Ég kem til með að skipta um upper mounting fyrir afturdemparann í leðininni, eitthvað annað?

Allar pælingar vel þegnar!

Author:  grettir [ Mon 13. Sep 2004 09:37 ]
Post subject: 

Ég setti Koni undir minn og líkar ljómandi vel við þá. Ég byrjaði að aftan, því þeir voru gersamlega búnir, en frestaði framdempurunum því mér fannst vera nóg eftir af þeim.
En þegar maður er kominn á nýja að aftan, þá finnur maður um leið hvað þeir eru slappir að framan, svo þeir fá að fjúka fljótlega :?

Author:  Ibzen [ Mon 13. Sep 2004 20:38 ]
Post subject: 

Hvernig losar maður aftur dempara í gegnum skottið eða?

Author:  Wolf [ Mon 13. Sep 2004 23:55 ]
Post subject:  .

Afturdempararnir eru losaðir í skottinu. Ég var að skipta um alla demparana á mínum 320i "93, þvílíkur munur!!! Enda voru framdampararnir gjörsamlega búnir. Ég keypti Sachs hjá TB undir allan bílinn fyrir 32þús sem eru nú engin ósköp fyrir 4 stk. Annars ættu menn nú ekki að vera feimnir við að skipta að framan ef menn eru með gormaklemmu. Þetta eru bara 3 boltar niðri og 3 rær uppi, og spennist allt auðveldlega frá, ekkert leiðinda vesen. Vinur minn skipti um þetta allt fyrir mig (með minni hundtryggu aðstoð) tók kvöldstund....

Author:  jonthor [ Tue 14. Sep 2004 10:42 ]
Post subject: 

Eftir mikla leit að óháðum BMW endursölugaur hér í .fr þá gafst ég upp og pantaði fullt af varahlutum frá www.bavauto.com Ég keypti varahluti fyrir um 540$ og sendingarkostnaður verður 160$. Þetta er allt talsvert ódýrara en frá umboði. Ég keypti m.a. orginal afturdempara sem ég ætla að skipta um í vikunni. Það verður spennandi að sjá hvernig það gengur að fá þetta. Þetta kemur með international fedex sem á ekki að taka meira en 3 daga.

Author:  Kull [ Tue 14. Sep 2004 11:11 ]
Post subject: 

Hvernig er að kaupa þetta í .de, er það ekki ódýrast?

Author:  jonthor [ Tue 14. Sep 2004 11:40 ]
Post subject: 

jú, gæti verið, ég athugaði það aðeins. Mér finnst þó ólíklegt að ég hefði getað fengið þetta mikið ódýrara. M.v. þá reynslu sem ég hef að láta senda mér frá .de þá er það ekki mikið ódýrara!

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/