bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Dekkjaþrýstingur i dekkjum
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=7361
Page 1 of 1

Author:  gstuning [ Fri 10. Sep 2004 14:22 ]
Post subject:  Dekkjaþrýstingur i dekkjum

Út frá drift umræðunni var ég að spá í hvaða þrýsting þið eruð með í dekkjunum og hvernig bíllinn lætur á þeim þrýsting

Komið einnig með hvaða eiginleikar þíð viljið að séu í bílnum ykkar miðað við núverandi fjöðrun og kannski get ég eða einhver annar komið með tip um hvernig er best að ná þeim eiginleika fram, oskard ekki svara :) hahaha

Ég verð að játa að ég hef ekki kíkt á þrýstinginn síðan í fyrra :oops:
en 325i MtII var hvort eð er orðin leiðinlegur á slöppum dempurum og eitthvað álíka og ekki mikið hægt að láta illa á honum eða fín stilla eitt né neitt


Allaveganna ég var með 32psi að framann og aftan vegna þess að dekkinn eru með helvíti stífan sidewall og því þurfti ég ekki að vera að pumpa mikið í þau, það var mjög fínt balance á 325is-inum sem var nú ekki með spes fjöðrun,, en virkaði fínt samann nokkuð neutral fílingur sem ég fíla,,

bílinn hjá mér núna er algjört mistery þar sem að ég hef ekki keyrt hann en samblanda af nokkuð af nýjum fóðringum og stífum dempurum læsingu og littlum og stífum sidewall á eftir að vera spennandi að prufa
og ég mun líklega byrja á 32psi og reyna þá að fikta í dempurunum til að byrja með og finna eins gott balance og ég fíla og laga svo til með dekkjaþrýstingnum

Author:  Haffi [ Fri 10. Sep 2004 14:47 ]
Post subject: 

Ég hef bara 32psi :roll: einhver dekkjakall sagði mér að hafa það þannig þannig að ég hef það þannig.

Author:  iar [ Fri 10. Sep 2004 15:00 ]
Post subject: 

Svipað hér. Ég ca. 30-32psi er mitt viðmið. Það er líka það sem handbókin segir til um. ;-)

En annars varðandi eiginleika og dekkjaþrýsting þá mæli ég með að mæla í hverjum eða öðrumhverjum mánuði. Ef þrýstingurinn er misjafn í dekkjunum þá hefur það alveg ótrúleg áhrif á eiginleika, t.d. í hjólförum á vegi. Þetta er svo auðveld aðgerð að ganga einn hring og mæla að það er í raun rugl að gera það ekki reglulega.

Fyrst eftir að ég keypti minn þá fannst mér hann mjög leiðinlegur í hjólförum en skrifaði það á örlítið slag í stýrisenda sem skoðunargaurinn þóttist hafa fundið. Svo mældi ég þrýstinginn og þá var mun lægri þrýstingur í hægra framdekkinu en því vinstra (ca. 24 vs 30 ef ég man rétt). Eftir að jafna þrýstinginn þá snarminnkaði þetta rás í hjólförum.

Svo í lokinn verður maður nú að vitna í þau ódauðlegu orð: "Passaðu þrýstingin maður!" :lol:

Author:  Svezel [ Fri 10. Sep 2004 17:06 ]
Post subject: 

Halló halló erum við ekki á BMW hérna? Dekkjaþrýsting á BMW skal mæla í börum :wink:

Annars er ég með 2.3bör hjá mér í nýju framdekkjunum, það voru einhver 2.6 í þeim fyrst en þá fann ég fyrir undirstýringu svo ég lækkaði niður í 2.3 og það er fínt.

Að aftan er ég svo með 2.2bör og er ég bara nokkuð sáttur við það.

Author:  bjahja [ Sat 11. Sep 2004 06:16 ]
Post subject: 

Ég er með 37 psi í mínum.......hef soldið verið að leika mér að prófa mismunadi þrýsting a að framan og aftan en svona venjulega 37

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/