bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 03. May 2025 23:07

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 12 posts ] 
Author Message
PostPosted: Thu 26. Aug 2004 14:45 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sat 25. Oct 2003 19:40
Posts: 151
Location: Grafarvogur
bíllinn minn er 1989 318i. Ég hef 2 lent í því á síðustu viku að bíllinn hefur ekki farið í gang. Hann startar, snýr en fer ekki í gang. Svo fer hann í gang circa hálftíma seinna eftir að ég hef reynt að starta nokkuð oft. Einnig hef ég orðið var við einhvers konar hökt einstaka sinnum þegar ég hef verið að keyra hann. Það lýsir sér þannig að það kemur eitt slag eða hökt í bílinn ef maður er bara að keyra hann venjulega.

í dag var ég svo að keyra og þá kom svona hökt í bílinn og strax aftur annað hökt og þá drap hann á sér. Hann fór svo í gang eftir kortér og þá gat ég keyrt hann heim. Ég er í stökustu vandræðum og óska eftir hjálp :(


Last edited by A.H. on Tue 21. Sep 2004 15:06, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 26. Aug 2004 15:35 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Mon 19. Apr 2004 02:07
Posts: 2645
Location: á M5 á hlið eða í læknis leik með systur þinni
spurning hvort þetta sé relayið fyrir innspítinguna eða bensíndæluna

ég lenti nebbla í svipuðum aðstæðum með minn í sumar og það var bara relayið fyrir innspítinguna og þá vara hann stundum bara að drepa á sé uppúr þuru á ferð þá var það bara relayið eikkað orðið slappt og það var skipt um þa fyrir mig og kostaði 2000 kall :P

_________________
Þórður Finnbogi
GSM:663-2524

BMW M5 E39 1999 veðlaus :D
BMW 316i E36 1999 kraftlaus
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Vandræði með e30
PostPosted: Thu 26. Aug 2004 15:43 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jul 2004 13:39
Posts: 1099
Location: Sønderborg, Danmark
A.H. wrote:
bíllinn minn er 1989 318i. Ég hef 2 lent í því á síðustu viku að bíllinn hefur ekki farið í gang. Hann startar, snýr en fer ekki í gang. Svo fer hann í gang circa hálftíma seinna eftir að ég hef reynt að starta nokkuð oft. Einnig hef ég orðið var við einhvers konar hökt einstaka sinnum þegar ég hef verið að keyra hann. Það lýsir sér þannig að það kemur eitt slag eða hökt í bílinn ef maður er bara að keyra hann venjulega.

í dag var ég svo að keyra og þá kom svona hökt í bílinn og strax aftur annað hökt og þá drap hann á sér. Hann fór svo í gang eftir kortér og þá gat ég keyrt hann heim. Ég er í stökustu vandræðum og óska eftir hjálp :(


ég held að það sé best að kíkja á það auðvelda, ertu búinn að að athuga kveikju lokið og hamarinn, ef það er í lagi athugaðu þá kertaþræðina og háspennu þráðinn, ef það er í lagi athugaðu þá bensín flæðið inn á vélina, þú ættir að geta fundið hvort það sé í lagi með því að taka kerti úr og starta, ( auðvitað með engan háspennu þráð tengdan) og ef það kemur bensín lykt er þetta líklega í order.

eh af þessu hlýtur að duga

_________________
Merkur(sierra) xr4ti


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 26. Aug 2004 16:04 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sat 25. Oct 2003 19:40
Posts: 151
Location: Grafarvogur
Takk kærlega fyrir góð svör :)
Ég ætla að athuga þetta.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 26. Aug 2004 16:25 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Posts: 3217
Location: Vesturbærinn
Einnig annað mjög einfalt að athuga,
Tengingin við rafgeyminn.

Taka þá af, og hreinsa þá, bæði tengin sjálf og pólana á geyminum.
Og líka elta vírinn sem fer í - á geyminum yfir í bílinn, og gera það sama þar, þ.e.a.s. hreinsa tengið og svæðið undir.

Lenti í því seinast í gær að það drapst á bíl hjá vini mínum og hann lét illa í lausagangi og allt sem var að var lélegt samband þarna.

_________________
BMW E46 328i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 26. Aug 2004 16:34 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jul 2004 13:39
Posts: 1099
Location: Sønderborg, Danmark
jur vélkomm

_________________
Merkur(sierra) xr4ti


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 28. Aug 2004 16:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
Minn gerir þetta sama

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 13. Sep 2004 17:25 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Mon 13. Sep 2004 14:56
Posts: 1
Ég lenti í þessu með 525ix ´93 bílinn minn. Ég var búinn að vera í stökustu vandræðum með þetta og búinn að fara ótal ferðir á verkstæði út af þessu m.a. var skipt reglulega um súrefnisskynjara og fleira reynt. Í þau skipti sem þetta kom upp var nóg að bíða í svona 5 - 15 mínútur og svo gekk hann jafnvel í hnökralaust í nokkra mánuði. Síðan kom að því að hann stoppaði alveg. Ýmislegt var reynt en ekkert gekk fyrr en við rákum augun í að tölvukubbur sem settur var í aukalega 2 árum fyrr var eitthvað laus. Eftir að hann var festur almennilega gekk allt eins og í sögu. Veit ekki hvort þetta gæti reddað þér en allt í lagi að athuga þetta ef þú ert með aukatölvukubb í þínum bíl.

_________________
BMW 525IX 1993


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 21. Sep 2004 15:05 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sat 25. Oct 2003 19:40
Posts: 151
Location: Grafarvogur
Ég þakka fyrir góð svör.
Í síðustu viku kom relayið fyrir innspýtinguna frá Þýskalandi.
Ég skellti því í og síðan þá hef ég ekki orðið var við nein vandamál :)

Gamla relayið hafði ofhitnað, það var eins og hálfbráðnað.
Vildi bara láta vita hvað þetta var ef einhverjir aðrir lenda í þessu :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 21. Sep 2004 15:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
A.H. wrote:
Ég þakka fyrir góð svör.
Í síðustu viku kom relayið fyrir innspýtinguna frá Þýskalandi.
Ég skellti því í og síðan þá hef ég ekki orðið var við nein vandamál :)

Gamla relayið hafði ofhitnað, það var eins og hálfbráðnað.
Vildi bara láta vita hvað þetta var ef einhverjir aðrir lenda í þessu :wink:

Hvað kostaði relayið??

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 21. Sep 2004 18:10 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sat 25. Oct 2003 19:40
Posts: 151
Location: Grafarvogur
Það kostaði rúmar 1600 krónur minnir mig, með afslætti stráks sem vinnur á verksæðinu. Mér fannst það mjög vel sloppið.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Sep 2004 11:53 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Mon 19. Apr 2004 02:07
Posts: 2645
Location: á M5 á hlið eða í læknis leik með systur þinni
ok gott að þetta reddaðist :D

_________________
Þórður Finnbogi
GSM:663-2524

BMW M5 E39 1999 veðlaus :D
BMW 316i E36 1999 kraftlaus
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 12 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group