bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Skipt um frjókornasíu í E36 + ólykt frá loftkælingu https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=7070 |
Page 1 of 1 |
Author: | iar [ Wed 11. Aug 2004 22:20 ] |
Post subject: | Skipt um frjókornasíu í E36 + ólykt frá loftkælingu |
Lagðist í smá aðgerð og skipti um microfilter í kagganum. Ég hefði gert leiðbeiningar ef ég hefði ekki fundið svona líka fínar leiðbeiningar á netinu. ![]() Til að komast að microfilternum í E36 þarf að taka hanskahólfið út og hér eru leiðbeiningar fyrir það: http://www.gbnetwork.co.uk/bmw/glovebox/ (Afrit hér) Og svo er það microfilterinn sjálfur: http://users.ids.net/~thompson/bmw/microfilter.html (Afrit hér) Þetta eru þvílíkar snillarleiðbeiningar að það hálfa væri nóg. Farið eftir þessu og þetta er minnsta mál. Kannski að bæta við að ef þið lendið í því að úr loftkælingunni komi hræðilegur óþefur þá er til bakteríudrepandi efni frá Wurth sem er tilvalið að nota samhliða skiptum á microfilternum. Ég tók filterinn út og sprautaði efninu út um allt inn þar sem filterinn var, svo lokaði ég filterhólfinu (filterslausu) og setti bílinn í gang og A/C á fullan blástur á kaldasta og spreyjaði inn um loftinntakið aftast í húddinu undir framrúðunni (tók grindina fyrst frá). Tók dágóðan rúnt og finn alls enga lykt en læt vita ef þetta endist ekki nógu lengi. Þetta ku vera algengt vandamál með loftkælingar vegna rakamyndunar og bakteríum sem safnast í rakann. Þetta fer svo eftir loftslagi og notkun á loftkælingunni hvort þetta kemur upp og hversu slæmt það er. Getur verið mjög nastý fnykur þegar það er sem verst. |
Author: | hlynurst [ Wed 11. Aug 2004 23:12 ] |
Post subject: | |
Snilld hjá þér. Gott að þú náðir að losa þig við lyktina sem er samhliða AC... fólk horfði alltaf á mig eins og ég væri búinn að setja bombu þegar maður var að slökkva á þessu. ![]() |
Author: | Eggert [ Thu 12. Aug 2004 02:19 ] |
Post subject: | |
hlynurst: varstu að keyra uppí grafarvogi í kvöld um 23:00-23:30 ? Ef svo er, þá er þetta gullfallegur bíll hjá þér.. flott hvernig hann er lækkaður (ef þetta er sá hinn sami) ![]() |
Author: | hlynurst [ Thu 12. Aug 2004 08:51 ] |
Post subject: | |
Já það getur passað Eggert. Takk. ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |