bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Start vesen
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=7064
Page 1 of 3

Author:  force` [ Tue 10. Aug 2004 20:38 ]
Post subject:  Start vesen

Ok,
málið er það að bíllinn fer ekki í gang.
bensíndælan virkar, háspennukeflið virkar, hann fær bensín,
snýst vel, og ALLT,
en svo var einn kertaþráðurinn tekinn af og prófaður,
nada............

WTF ?!?
er orðin ílla pirruð á þessu.
Hefur einhver hugmynd?
Þeir fá samt rafmagn skv því sem deilir því niður á þá,
en það bara gerist EKKERT..................

Author:  sindrib [ Wed 11. Aug 2004 07:47 ]
Post subject: 

ónýtur kerta þráður kanski? :roll:

Author:  force` [ Wed 11. Aug 2004 15:23 ]
Post subject: 

pant ekki að það sé málið,
kosta einungis hva, 88þús hjá b&l settið........

Author:  Ozeki [ Wed 11. Aug 2004 21:54 ]
Post subject:  Re: Start vesen

force` wrote:
Þeir fá samt rafmagn skv því sem deilir því niður á þá,
en það bara gerist EKKERT..................


Nú þekki ég ekki vélina í bílnum þínum ... svo hér gæti komið heimskuleg ábending, en allavega : er kveikja í bílnum, þ.e. kveikjulok og kveikjuhamar o.s.fr. Ef svo, ertu búin að ath að kveikjuhamarinn snúist þegar bílnum er startað?

þú segjir að háspennukeflið virki, þá væntanlega búin að taka þráðinn af því og sjá neista. Ef ekkert er að koma á kertaþræði gæti það verið vegna þess að kveikjuhamar/lok sé farið eða ásinn í kveikjunni sé bara ekki að snúast með vél.

Author:  Eggert [ Wed 11. Aug 2004 22:23 ]
Post subject: 

force` wrote:
pant ekki að það sé málið,
kosta einungis hva, 88þús hjá b&l settið........


Hvurslags þjófnaður er það ?

Author:  force` [ Wed 11. Aug 2004 22:33 ]
Post subject: 

Ozeki,
það er nefnilega málið, ég held það sé ekki kveikjulok og hamar í þessum bíl, ég amk finn það ekki.......

Eggert, ég meinti nú bæði settin,
en ég var leiðrétt með það, það er víst ekki nema 62þús bæði settin,
en mér var samt gefið upp þessi verð af einhverjum eldri manni
í símann um daginn, hann gæti hafa lesið þetta eitthvað vitlaust eða
eitthvað :)

Author:  force` [ Wed 11. Aug 2004 22:34 ]
Post subject: 

er orðin ílla stressuð á þessu,
ætlaði með hann í aflestur en ég
nenni ekki að fara að leigja mér kerru fyrir það :cry:

Author:  Friðrik [ Wed 11. Aug 2004 22:50 ]
Post subject: 

sko þó þú sjáir neista frá háspennukeflinu þarf ekki að vera að það sé nógu mikill neisti ég mæli með ef þú ert ekki búin að því að mæla neistan svo líka ertu búin að tékka eitthvað á kertunum (reyndar dáldið ótrúlegt að þau færu öll í einu en hver veit)

Author:  force` [ Wed 11. Aug 2004 22:52 ]
Post subject: 

nei þetta var allt mælt og það kom rétt út (er ekkert í rafmagni en þetta var mælt fyrir mig)

bara er ekki að skilja þetta, kertin eiga að vera í lagi, svo er agalegt ves að ná þeim úr..... þeir í b&l segja að ég þurfi 16mm kertatopp og nokkrar frammlengingar og liði :?
sounds scary....

Author:  Eggert [ Thu 12. Aug 2004 02:17 ]
Post subject: 

force` wrote:
Ozeki,
það er nefnilega málið, ég held það sé ekki kveikjulok og hamar í þessum bíl, ég amk finn það ekki.......

Eggert, ég meinti nú bæði settin,
en ég var leiðrétt með það, það er víst ekki nema 62þús bæði settin,
en mér var samt gefið upp þessi verð af einhverjum eldri manni
í símann um daginn, hann gæti hafa lesið þetta eitthvað vitlaust eða
eitthvað :)


Þetta er náttla bara rán við hábjartan dag. Úr hverju eru þessir þræðir eginlega ? Fíber og títaníum ?

Það er bara ekki fræðilegur möguleiki á því að fjöldaframleiddir kertaþræðir þurfi að kosta svona mikið. Þræðir í toyotu kosta um 5 kallinn, ef ekki minna, svo þetta ætti aldrei að kosta meira en svona 20-25 þús að því gefnu að þetta er BMW, 3 sinnum fleiri þræðir og í allt öðrum gæðaflokki.

Er B&L endanlega að tapa sér eða er ég að missa af einhverju ?

Author:  force` [ Thu 12. Aug 2004 08:31 ]
Post subject: 

nei ég veit ekki úr hverju þeir eru..
eða hvernig þeir eru, hvort þeir séu eitthvað spes, ég hef bara rétt séð endann á þeim sem fara á kertin samt,
þannig að þeir í b&l sem eru hérna á spjallinu verða að svara því fyrir þig :?

Author:  Ozeki [ Thu 12. Aug 2004 19:57 ]
Post subject: 

force` wrote:
Ozeki,
það er nefnilega málið, ég held það sé ekki kveikjulok og hamar í þessum bíl, ég amk finn það ekki.......


hmm ... það hlýtur eiginlega að vera. Þetta er E32 750 ekki satt .. ?
Á schmiedmann er allavega sýnt kveikjulok og hamar í þannig bíl.

Ef það er háspennukefli og kveikjuþræðir á hvert kerti hlýtur eiginlega að vera einhver mekaník sem deilir neistanum .... bara rekja sig eftir þráðunum.

Author:  Alpina [ Thu 12. Aug 2004 20:39 ]
Post subject: 

force` wrote:
nei ég veit ekki úr hverju þeir eru..
eða hvernig þeir eru, hvort þeir séu eitthvað spes, ég hef bara rétt séð endann á þeim sem fara á kertin samt,
þannig að þeir í b&l sem eru hérna á spjallinu verða að svara því fyrir þig :?


heyrðu ,,væna,, enginn hér virðist geta leyst þetta ,, Þó að það kosti $$$ þá er kannski eini möguleikinn að fara á ..almennilegt verkstæði

,,TO run 12 CYL you have to pay

Author:  Schnitzerinn [ Thu 12. Aug 2004 21:33 ]
Post subject: 

Prófaðu að sparka í dekkin, það virkaði í gamla daga :wink:

Author:  force` [ Thu 12. Aug 2004 22:16 ]
Post subject: 

rosalega fyndnir strákar.
það er nú ekki minn bíll sem er strand, það er hinn bíllinn minn,
langar að koma honum í gang svo ég komist með hann í aflestur.

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/