Hæ BMW áhugafólk.
Ég varð fyrir því óláni í dag að bíllinn hjá mér sem er af gerðinni BMW 318i e36 - 91árg. drap á sér í miðri umferð. Ég náði þó að kveikja á bílnum aftur og kom mér á leiðarenda. Svo þegar aftur var haldið út í umferðina tók bíllinn upp á því að slökkva á sér aftur. Ég kveikti þá á honum aftur og gekk allt vel eftir það eins og í fyrra skiptið. Dettur einhverjum í hug hvað gæti verið að valda þessari bilun?


