Page 1 of 1

Reykur úr vél...

PostPosted: Fri 25. Apr 2014 23:06
by olinn
Var að taka eftir því þegar vélin hitnar þá kemur smá reykur upp vinstra megin við vélina.
Helt fyrst að þetta væri bara einhver olía á soggreininni þannig ég þreif hana vel, en þetta kemur enn.
Nú þegar ég er loksins búinn að losna við kvefið þá fann ég smá olíulykt af þessu og er þá að pæla hvort þetta gæti verið heddpakkning eða eitthvað annað :roll:
Bíllinn er buinn að vera inni í allan vetur, og settur í gang reglulega.

Re: Reykur úr vél...

PostPosted: Sat 26. Apr 2014 01:34
by BMW_Owner
nee þú finnur enga olíulykt ef heddpakkingin er að fara, bara kremlituð olía eða olía í vatninu. en hins vegar getur verið að það hafi losnað slangan frá ventlalokinu í soggreininga hjá þér. þessi olíuöndun framalega á vélinni, hún fer undir soggreininga og eitthvert þaðan. það er það eina vinstra meginn á vélinni sem getur komið olíureykur/lykt úr, en almennt þegar það kemur reykur farþegameginn á vélinni þá er ventlalokspakkningin búin og olían lekur á pústgreinina og myndar þessa gullfallegu olíubrælu.

Re: Reykur úr vél...

PostPosted: Sat 26. Apr 2014 13:12
by olinn
BMW_Owner wrote:nee þú finnur enga olíulykt ef heddpakkingin er að fara, bara kremlituð olía eða olía í vatninu. en hins vegar getur verið að það hafi losnað slangan frá ventlalokinu í soggreininga hjá þér. þessi olíuöndun framalega á vélinni, hún fer undir soggreininga og eitthvert þaðan. það er það eina vinstra meginn á vélinni sem getur komið olíureykur/lykt úr, en almennt þegar það kemur reykur farþegameginn á vélinni þá er ventlalokspakkningin búin og olían lekur á pústgreinina og myndar þessa gullfallegu olíubrælu.


Hélt einmitt að þetta væri bara reykur af soggreininni þannig ég þreif hana eins og ég gat, bremsuhreinsi og heitt vatn...
Svo hélt þetta áfram að koma, en athuga á slöngunni undir soggreininni á morgun.

Re: Reykur úr vél...

PostPosted: Sat 26. Apr 2014 14:20
by gardara
Nærðu nokkuð að þrífa þetta af soggreininni, er ekki best að láta þetta bara brenna af? Það tekur nú ekki svo langan tíma

Re: Reykur úr vél...

PostPosted: Sat 26. Apr 2014 17:57
by olinn
gardara wrote:Nærðu nokkuð að þrífa þetta af soggreininni, er ekki best að láta þetta bara brenna af? Það tekur nú ekki svo langan tíma



Reyndar, var bara hræddur um að þetta væri eithvað annað.
Prufaði að taka einn hring, fannst þetta vera bara meira eftir því hvað hann hitnaði.