Page 1 of 1

Frostlögslykt

PostPosted: Mon 04. Nov 2013 13:43
by Amino
Hefur einhver hugmynd um hvað gæti verið að. Ég er með bmw þetta lýsir sér þannig að þegar ég er búinn að vera keyra í og bíllinn orðinn heitur þá finn ég lykt að fröstlög koma inní bíllinn, svo þegar ég opna húddið þá finnst hún þar líka, svo hef ég tekið eftir því að það minnkar vatnið á honum smátt og smátt ég er nokkurn veginn viss um það að hann brenni ekki vatninu, hef ekki tekið eftir neinum pollum undir bílnum, finnst einsog hann sé að hita sig eitthvað aðeins. veit einhver hvað er að?

Re: Frostlögslykt

PostPosted: Mon 04. Nov 2013 13:51
by ömmudriver
Er olía í kælivökvanum eða öfugt, kemur hvítur reykur úr pústinu eða er miðstöðvarelementið að leka hjá þér?

Re: Frostlögslykt

PostPosted: Mon 04. Nov 2013 14:08
by Amino
Það er ekki olía í kælivatninu eða öfugt hann reykir nokkuð eðlilega veit ekki með miðstöðvar elimentið hvar er það staðsett?

Re: Frostlögslykt

PostPosted: Mon 04. Nov 2013 16:18
by Axel Jóhann
Elementið er bakvið mælaborðið, það þarf að rífa það úrtil að skipta um það. :santa: