Þar sem ég veit ekki mikið um þetta sjálfur ákvað ég að spyrja hér

Fór með bílinn í aðalskoðun í hafnarfirði fyrir 2 mánuðum og fékk endurskoðun út á nokkra minniháttarhluti. Bíllinn hefur alltaf verið hundleiðinlegur þegar hann fer í holur og svona hristist allur í stýri og ég veit ekki hvað og hvað, hugsaði ekkert út í það þannig fyrr en núna. Eeeen svo var verið að skipta um bremsur í bílnum í dag og þá kom í ljós að nokkrir hlutir eru ekki í lagi og var ekkert sett út á í skoðun. Fyrst er það gormur aftan sá sem er ekki bara brotinn á einum stað heldur þríbrotinn... Annað sem var að er hjólalega að aftan og svo það besta spindilkúla framan á sem mér var sagt að er gjörsamlega haaaaandónýt sem er náttúrulega stórhættulegt
Nú veit ég ekkert hvernig þetta er eeen, hvað myndi það kosta mig að láta skipta um þetta? Þá er ég að tala um vinnu + varahluti?