Page 1 of 1

Hvar er best að kaupa sílsa í E34?

PostPosted: Thu 24. Oct 2013 22:47
by ömmudriver
Sælir spjallverjar,

ég hafði hugsað mér að láta gera við gömlu sílsana í E34 Touring hjá mér en tel betra að skipta bara um þá komplett en hef sjálfur ekki tekist að finna þá á [url]bmwfans.info[/url]

Getur verið að þeir séu númer sex á þessari mynd: http://bmwfans.info/parts/catalog/E34/Touring/Europe/530i-M60/LHD/M/1993/january/browse/bodywork/single_components_for_body_side_frame/ ?

Svo er málið að kaupa þá aftermarket en veit ekki hvar skal leita fyrir utan það að ég vill ekki eitthverja rusl sílsa þannig að kínapartar koma ekki til greina.

Með von um svör
MBK,
Arnar Már.

Re: Hvar er best að kaupa sílsa í E34?

PostPosted: Thu 24. Oct 2013 23:14
by gardara
Voru AB ekki að flytja inn eitthvað dót sem átti að vera allt í lagi?

Re: Hvar er best að kaupa sílsa í E34?

PostPosted: Thu 24. Oct 2013 23:43
by íbbi_
vanur maður ætti að geta smíðað þetta þannig að mjög gott sé.

Re: Hvar er best að kaupa sílsa í E34?

PostPosted: Fri 25. Oct 2013 00:22
by Alpina
íbbi_ wrote:vanur maður ætti að geta smíðað þetta þannig að mjög gott sé.


Gunni Bjarna........... :thup: :thup:

Re: Hvar er best að kaupa sílsa í E34?

PostPosted: Fri 25. Oct 2013 00:37
by Axel Jóhann
hægt að fá í AB á fínum prís bara ganga vel frá því

Re: Hvar er best að kaupa sílsa í E34?

PostPosted: Fri 25. Oct 2013 01:08
by ömmudriver
Ok, önnur spurning; Hvort mæla menn með því að kaupa nýja sílsa og láta skipta um eða láta vanan mann gera við/ smíða nýja sílsa?

Re: Hvar er best að kaupa sílsa í E34?

PostPosted: Fri 25. Oct 2013 01:25
by kristjan535
ég keypti nýja mikið einfaldara dæmi svo bara að passa að skerra eins og nýju eru reyndar notaði ég ekki allt af nýju sílsunum stytti endana :D

Re: Hvar er best að kaupa sílsa í E34?

PostPosted: Fri 25. Oct 2013 01:39
by Danni
Númer 6 á myndinni sem þú póstaðir er innra byrði sílsanna. Sennilega eitthvað ryðgað líka en bara mikið vesen að skipta um það miðað við ytra byrðið.

http://bmwfans.info/parts/catalog/E34/T ... ide_frame/ Hérna er ytra, en það virðist ekki vera hægt að fá bara complete sílsann alla leið orginal.

Síðan ef þér langar að láta skipta um ónýta framhornið líka þá er þér velkomið að skera það af vínrauða flakinu mínu, það er alveg ótjónað.

Re: Hvar er best að kaupa sílsa í E34?

PostPosted: Fri 25. Oct 2013 01:40
by íbbi_
ég held að gæðin á suðuvinnuni og frágangnum sé miklu meira ráðandi faktor í hvernig þetta endist heldur en hvort það sé smíðað eða notuð tilbúinn stykki.

ég held að það séu að verða tvö ár bráðum frá því ég smíðaði þennnan, hafði aldrei smíðað neitt svona áður og ekki soðið á mig vél. hann er ennþá þarna og virðist ekkert vera að fara undan, það var sett tilbúinn sílsa hinumeginn og hann er ekki mikill ef einhver munurinn á þeim. myndin er ný, og þetta var frá aftari hjóla skál undir miðja framhurð. 80cm og upp í mitt hurðafals að aftan
innra og ytrabyrði
Image

Re: Hvar er best að kaupa sílsa í E34?

PostPosted: Fri 25. Oct 2013 08:21
by Angelic0-
Ekki segja mér að þetta sé Terrano sem að tengdarforeldrar þínir áttu Ívar :?:

Re: Hvar er best að kaupa sílsa í E34?

PostPosted: Fri 25. Oct 2013 12:19
by íbbi_
tengdaforeldrar mínir hafa aldrei átt terrano :) þau eru á patrol,

þetta er gamli vinnu bíllinn okkar pabba,