Page 1 of 1
Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Sun 06. Oct 2013 21:48
by Helgason
Daginn.
Er núna að byrja aðra viku í bið eftir pörtum frá Pelican parts sem virtust vera á lager.
Hef mjög góða reynslu af því að panta hluti frá Evrópu, t.d. Bretlandi og Þýskalandi.
Er einhver ódýr síða sem svipar til Pelican Parts sem eru fljótari að shippa?
Vantar smotterí í E39:
11531731833
11151702012
Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Sun 06. Oct 2013 21:51
by Angelic0-
11531731833 - ~2000kr
11151702012 - ~6000kr
7-10dagar hingað komið, +/-5dagar
Frá USA... sendu mér PM ef þú vilt ganga frá þessu, greiðist við afhendingu
Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Sun 06. Oct 2013 21:56
by Helgason
Angelic0- wrote:11531731833 - ~2000kr
11151702012 - ~6000kr
7-10dagar hingað komið, +/-5dagar
Frá USA... sendu mér PM ef þú vilt ganga frá þessu, greiðist við afhendingu
Þakka gott boð, hef það í huga.
Er bjartsýnn í kvöld og er að fiska eftir 3-5 daga bið, væri flott að þetta væri komið fyrir helgi.
Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Sun 06. Oct 2013 21:58
by gardara
schmiedmann + dhl og dótið er komið til þín í somu vikunni.
Ef schmiedmann eru með þetta á lager þaes.
Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Mon 07. Oct 2013 03:32
by Danni
Þú getur reddað þessu á morgun þess vegna. Síðast þegar ég vissi þá átti Arnar ömmudriver svona rör úr sínum M60B30 aukamótor (eflaust fleyri, passar úr öllum M60 og M62) og síðan hlýtur að vera hægt að kaupa svona bréf pakkningarefni í Bílanaust til að búa til pakkningarnar. Á 4.0 vélinni hans Arnars settum við notaðar pakkningar fyrir Bíladaga og það hefur svo best sem ég veit ekki verið neitt lekanda vesen á þeim.
Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Mon 07. Oct 2013 17:49
by bErio
Angelic0- wrote:11531731833 - ~2000kr
11151702012 - ~6000kr
7-10dagar hingað komið, +/-5dagar
Frá USA... sendu mér PM ef þú vilt ganga frá þessu, greiðist við afhendingu
11531731833 - ~1453kr
11151702012 - ~5795kr
Verð án afsláttar i BL
Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Mon 07. Oct 2013 19:24
by Angelic0-
eða það

Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Mon 07. Oct 2013 19:52
by srr
bErio wrote:Angelic0- wrote:11531731833 - ~2000kr
11151702012 - ~6000kr
7-10dagar hingað komið, +/-5dagar
Frá USA... sendu mér PM ef þú vilt ganga frá þessu, greiðist við afhendingu
11531731833 - ~1453kr
11151702012 - ~5795kr
Verð án afsláttar i BL
YEAH!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
BL komið í samkeppni við kraftsmeðlimi.
Hélt ég myndi aldrei sjá þennan dag

Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Tue 15. Oct 2013 21:45
by Helgason
OJ hvað ég er orðinn pirraður á að bíða eftir þessari sendingu minni... var sett í gang 27. september, núna var að koma uppfærsla 15. október að hún sé komin TIL NEW YORK
Jæja, hún hlýtur þá að fljúga hingað og ég mun kannski fá þetta fyrir helgi. Þrjár vikur eru kannski ekki lengsti tími í heimi, en hef oft fengið hluti frá BNA á 5-7 virkum dögum.
Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Wed 16. Oct 2013 06:19
by ömmudriver
Helgason wrote:OJ hvað ég er orðinn pirraður á að bíða eftir þessari sendingu minni... var sett í gang 27. september, núna var að koma uppfærsla 15. október að hún sé komin TIL NEW YORK
Jæja, hún hlýtur þá að fljúga hingað og ég mun kannski fá þetta fyrir helgi. Þrjár vikur eru kannski ekki lengsti tími í heimi, en hef oft fengið hluti frá BNA á 5-7 virkum dögum.
Þú hefur klárlega valið ódýrasta sendingar valmöguleikan

Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Wed 16. Oct 2013 09:11
by SteiniDJ
Það er bara svo draugfúlt að þurfa borga hærri gjöld af hlutnum ef maður vill fá hann fyrr heim.
Ekki reyna að réttlæta það; þetta er endalaus vitleysa í landi þar sem hver einasti viðrekstur er skattlagður í allar áttir.
Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Wed 16. Oct 2013 17:44
by Helgason
Ég hef greinilega rétt misst af Cargo fluginu til Íslands fyrir pöntun #1.
23. sept - pöntun #1 send á Pelican Parts
27. sept - kominn með trakcing númer fyrir pöntun #1
11. okt - pöntun #2 send á Pelican Parts
12. okt - kominn með tracking númer fyrir pöntun #2
15. okt bæði pöntun #1 og #2 komu til landsins
Undarlegt nokk, en loksins er þetta komið. Eins og sést á þessu er alveg möguleiki á að fá pöntun á uþb. viku.
Re: Netverslun með varahluti í Evrópu?

Posted:
Sat 19. Oct 2013 18:06
by Angelic0-
3 vikur er samt mjög óeðlilegt...
Ég hef verið að fá hlutina mína flesta með 3-7daga sendingartíma með ódýrasta sendingarmáta...
Hefur stundum tekið 3-6vikur samt að fá drasl frá kína og ástralíu..