Page 1 of 1

BMW 316i, lyklasmíði og útvarpsvesen

PostPosted: Wed 11. Sep 2013 12:21
by yrsteinthors
Ég er með BMW 316i '99, ég fékk bara einn lykil með bílnum og vil helst eiga tvo. Ég er búin að hafa samband við lyklasmiði en þeir segjast ekki geta forritað þennan lykil. Þá hafði ég samband við BL og þeir sögðu að eina leiðin væri að panta lykil frá útlöndum. Eruð þið með einhverjar aðrar lausnir?

Svo ætlaði ég að spurja hvort að þið sem eigið gamla BMW hvort að þið væruð að lenda í veseni með útvarpið. Það er ekkert sjáanlegt loftnet á bílnum en mer var sagt að það væri einhverstaðar í rúðunni..Það eru fáar stöðvar sem nást og það koma truflanir þegar ég eik hraðann.

Endilega svara ef þið vitið eitthvað um þetta :)

Re: BMW 316i, lyklasmíði og útvarpsvesen

PostPosted: Wed 11. Sep 2013 21:14
by íbbi_
loftnetið er í rúðuni. minn er nær AFAR lelegu signali svo ekki sé meira sagt. yfirleitt þýðir lítið að reyna ná útvarpinu