Ég var með M42 mótor í 7 ár og ók yfir 100þús km á þeim tíma, ég gerði ýmislegt á þeim tíma í tuning málum.
Prófaði fyrst kubb frá Pro Performance
http://propowerperf.com/, þeir lofuðu ekki neinu sambandi við aflaukningu en sögðu að ég myndi græða eitthvað og þá í high end, þessi kubbur breytti því að ég fór úr 6800 sn/mín í 7000 sn/mín í útslátt.
Seinni kubburinn var frá Evo-S
http://www.evolveautomotive.com/ og var hann smíðaður eftir raðnúmeri ECU í bílnum mínu, GST kom mér í samband við þessa stráka. Þessi kubbur var miklu meira pro, honum fylgdi mæling upp á 12 hp og aukningu í Nm. Þessi fór með útslátt í 7300 sn/mín sem var geggjað og kom aukninginn út í high end eins og í fyrri.
Ég er ekki viss að maður fái mikið út úr þessum kubb brölti, enginn áþreifanlegur munur og lausagangur verður leiðilegri.
Það sem ég get sagt að hafi gert mest fyrir M42 var opnara púst, fór í gegnum nokkur setup í þeim málum en endaði hjá Einar í Kópavogi og það gerði mest fyrir bílinn fannst mér.
Cone og hitahlíf gerði ekki neitt stórkostleg en gerði hljóðið í bílnum meira agressiv.