Page 1 of 1

útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Fri 19. Apr 2013 16:33
by omar94
lenti í því að þurfa að aftengja rafgeyminn um daginn og nú virkar ekki útvarpið, það kemur samt ljós á það.
þetta er orginal útvarp úr "96 bmw e36.
það er i lagi með öryggi.

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Fri 19. Apr 2013 18:29
by Angelic0-
í ruslið bara... finna gamlan pioneer spilara...

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Fri 19. Apr 2013 18:30
by Danni
Þú þarft að setja inn kóðann fyrir útvarpið aftur. Finndu í hanskahólfinu bæklinginn fyrir útvarpið. Þar geturðu fundið upplýsingar um hvernig þú átt að setja inn kóðann (misjafnt eftir tækjum) og síðan ætti kóðinn sjálfur að vera á miða aftast í þeim bæklingi, eða einhverstaðar í kring.

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Fri 19. Apr 2013 18:51
by PeturW
ég lennti í sama veseni um daginn.
Hvað get ég gert ef þessi bæklingur er ekki lengur til staðar?

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Fri 19. Apr 2013 23:08
by HaffiG
Þú hringir í BL og KAUPIR (!!!!!!) kóðann af tækinu

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Sat 20. Apr 2013 00:38
by sosupabbi
HaffiG wrote:Þú hringir í BL og KAUPIR (!!!!!!) kóðann af tækinu

Þarf maður að borga fyrir kóðann? djöfull er það ómerkilegt :!: , fékk þessa þjónustu frítt á gamla volvoinn hennar ömmu hjá brimborg.

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Sat 20. Apr 2013 03:09
by Danni
Ef þetta er Blaupunkt (mörg OEM tæki eru Blaupunkt) tæki þá finnur maður eitt númer á því sem byrjar minnir mig á BP og svo fullt af tölum og hringir í N1 þjónustuverkstæði sem er með Blaupunkt umboðið og þeir útvega kóðann frítt.

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Sun 21. Apr 2013 00:06
by Joibs
þarf maður virkilega að borga til að fá kóðan í BL!? :shock:
lenti í þessu þegar ég var að hálpa félaga mínum með einn benz og við fengum númerið strax og að kostnaðarlausu hjá öskju
fynst alveg hrikalegt að BL skuli vera að rukka fyrir þetta :roll:

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Sun 21. Apr 2013 17:54
by HaffiG
Jabb, þeir eru ný byrjaðir á þessu

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Sun 21. Apr 2013 23:20
by Angelic0-
Ég hafði margoft hringt áður til að fá kóða í Renault hjá fyrrverandi sem að var ALLTAF rafmagnslaus.... þá kostaði þetta ekki krónu...

Bara daunfúlt að þetta kosti :!:

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Tue 23. Apr 2013 15:12
by omar94
þetta koastar 2500kr hjá umboði. en þessi bíll er með smurbók frá upphafi og ég fletti aðeins í henni og sá að einhver var búinn að skrifa kóðann þar.
þannig þessu hefur verið reddað :)

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Tue 23. Apr 2013 18:13
by HaffiG
Angelic0- wrote:Ég hafði margoft hringt áður til að fá kóða í Renault hjá fyrrverandi sem að var ALLTAF rafmagnslaus.... þá kostaði þetta ekki krónu...

Þér hefur ekki dottið í hug að skrifa kóðann á blað? :lol:

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Tue 23. Apr 2013 18:27
by Angelic0-
HaffiG wrote:
Angelic0- wrote:Ég hafði margoft hringt áður til að fá kóða í Renault hjá fyrrverandi sem að var ALLTAF rafmagnslaus.... þá kostaði þetta ekki krónu...

Þér hefur ekki dottið í hug að skrifa kóðann á blað? :lol:


:lol: nei, ég var voða sjaldan á honum... en þegar ég fékk hann í hendurnar þá var alltaf kominn kóði á útvarpið... hehehe

Re: útvarp virkar ekki eftir að ég aftengdi rafgeyminn

PostPosted: Thu 25. Apr 2013 01:52
by IngóJP
Djöfull er þetta samt skítt að rukka fyrir þetta :shock: