bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E39 520 fjöðrun [spurning] https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=60932 |
Page 1 of 1 |
Author: | DoMo [ Thu 11. Apr 2013 04:20 ] |
Post subject: | E39 520 fjöðrun [spurning] |
Sælir,ég var að fá mér minn fyrsta bmw og var að pæla í fjöðruninni á honum ég var að pæla hvað væri best að nota,vill hafa hann aðeins lægri en stock en samt ekki þurfa að fórna þægindum. Þá helst að pæla í einhverju orginal bmw,hverju mæliði með? |
Author: | íbbi_ [ Fri 12. Apr 2013 12:51 ] |
Post subject: | Re: E39 520 fjöðrun [spurning] |
það eru til orginal M/sportfjöðrun sem er töluvert lægri en orginallin, en ennþá mjög þægilegir ef þú villt halda mýkt í bílnum þá skaltu skoða gorma, ég hef sjálfur verið að leyta af góðri fjöðrun í minn og séð að það eru nokkrir af þessum helstu framleiðendum (H&R, bilstein,KW og flr) sem bjóða upp á mis stífa gorma, eitt sem ég hef varast orðið er að taka of mikið mark á hvað mönnum á erlendu spjallborðunum finnst um ride qualaty, þeir virðast ekki vera á alveg sömu vegunum og við og hrósa oft set-up um sem eru síðan alveg glerhörð og leiðinleg á okkar vegum, við erum sjaldnast með alvöru malbik hérna nema rétt innan borgarmarkana, og mjög stíf fjöðrun og þá sérstaklega coiloverar eiga það til að leiða gróft yfirborð mjög mikið í gegnum bílinn og upp í stýrið. athugaðu líka að ef þú ferð í mun lægri gorma þá þarftu að fá þér dempara með í réttri hæð fyrir gormana, annars genguru mjög hratt frá orginal dempurunum og bíllinn byrjar að skoppa á veginum. ég hef verið að skoða gorma/dempara set up í minn á 700-1500$ úti. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |