bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
samlæsingar E46 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=60664 |
Page 1 of 2 |
Author: | íbbi_ [ Tue 26. Mar 2013 11:14 ] |
Post subject: | samlæsingar E46 |
topplúgan hjá mér tók upp á því í vetur að leggjast ekki rétt að þegar maður lokaði henni og afleiðingarnar af því var að bíllinn var afar vel rakur að innan í dáldinn tíma. þegar það var að frysta og þiðna til skiptist tók ég eftir því að þegar bíllinn var að þiðna þá fóru samlæsingarnar að flippa. það lýsir sér þannig að allar hurðar festast á hard lock, s.s hvorki hægt að opna þær innan né utan frá. og hef ég lent í neyðarlegu tilfelli þar sem ég var fastur inni í bílnum. ég TEL að þetta tengist rakanum þar sem það var áberandi erfiðast að eiga við þetta þegar bíllinn var blautur að innan. en núna er hann orðinn þannig að það er alveg random hvort hann opnist eða ekki. sem getur verið mjög pirrandi, í gær lenti ég t.d í því að þurfa að labba heim með dóttir mína og skilja bílinn eftir við leikskólan þar sem ég gat ekki opnað hann. bílstjórahurðin er með dáldið sjálfstæðan vilja samanborið við hinar, ég get altaf opnað hana með lykli, en stundum læsir hann sjálfur um leið. en stundum ekki, stundum fer hún á hardlock og stundum ekki. ég hef tekið eftir því að þegar hann byrjar á þessu þá hættir hann í leiðinni að læsa skottinu. það er væntanlega module fyrir samlæsingarnar, sem mig grunar að sé að svíkja. veit einhver hvar hann er staðsettur? og hefur einhver lent í svipuðum hlut? |
Author: | Angelic0- [ Tue 26. Mar 2013 11:19 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
Var ekki body control module (BC1?) sem að stjórnaði samlæsingunum ![]() Eða hvort að það var bara rúður og slíkt og svo var samlæsingadótið á GM (General Module) ? Slapi kannski svarar þessu, orðinn pínu rusty í þessu interior loom rugli.. |
Author: | íbbi_ [ Tue 26. Mar 2013 12:46 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
búinn að komast af því hvað þetta er að öllum líkindum og finna varahlut. |
Author: | Zed III [ Tue 26. Mar 2013 16:16 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
do tell, hefði verið gaman að sjá þig fastan í bílnum ![]() |
Author: | íbbi_ [ Tue 26. Mar 2013 18:12 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
haha satt. klárlega glatað moment ![]() mér var bent á að það væri heili sem stjórnaði þessu sem ætti það til að fara. staðsettur bakvið hanskahólfið maður skellir sér í þetta bráðlega. ef ég kemst inn í bílinn ![]() |
Author: | torri [ Wed 03. Apr 2013 21:36 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
Tetta er GM5module i e46, tarf ad skipta um relay i henni, tad er vandaverk tar sem tau eru ekki plug and play, tarf ad loda tau ur og i. getur lika keypt notada tolvu en ta virka samlæsingarnar ekki a takkanum a lyklinum, en allt annad virkar, hun er stadsett bakvid hanskaholfid, fjarlægir tad med nokkrum skrufum ![]() Afsaka isl.stafi er ad skrifa ur sima! |
Author: | íbbi_ [ Wed 03. Apr 2013 23:15 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
er ekki hægt að prógramma lykilinn við nýja module-ið? |
Author: | torri [ Thu 04. Apr 2013 09:18 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
Eflaust hægt, er búinn að kaupa snúrur og forrit á ebay sem á að geta allt sem umboðið getur á OBC 1 og 2 og ætlaði að reyna það hjá mér þegar ég væri búinn að leggja í það að setja það upp í fartölvuna. Annars var ég líka búinn að panta 2 relay sem mig vantaði og ætlaði að fá einhverja klára raf gæja til að smella þessu í en það hefur bara eitt af þeim skilað sér hingað heim. |
Author: | slapi [ Thu 04. Apr 2013 11:49 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
RING RING **Halló? * sæll þetta er Guð sem talar ** Já blessaður * heyrðu það er hægt að kóða fjarstýringarnar bara með gamla kóða trixinu ** Geggjað takk. * Já vertu nú góður strákur **Click |
Author: | Angelic0- [ Fri 05. Apr 2013 18:58 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
slapi wrote: RING RING **Halló? * sæll þetta er Guð sem talar ** Já blessaður * heyrðu það er hægt að kóða fjarstýringarnar bara með gamla kóða trixinu ** Geggjað takk. * Já vertu nú góður strákur **Click ![]() |
Author: | bjarni777 [ Sat 06. Apr 2013 03:34 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
hafa einhverjir verið að skipta um relayin fyrir samlæsingar tölvuna? hef heyrt að það sé oftast eh kllikk í tolvunni sjálfri á við þetta vandamál að stríða í mínum bíl, virkar oftast að læsa bílnum aftur með fjarstýringunni ef hann opnar ekki þangað til inniljósin slökkna og opna þá strax þá opnar minn allavega allar hurðir, sjálfsagt mismunandi milli bíla.. |
Author: | íbbi_ [ Sat 06. Apr 2013 11:46 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
minn opnar með samlæsingunum eftir að hann hefur verið í gangi í smá. svo byrjar hann aftur á þessu. svo er hann bara random á það hvað hann gerir |
Author: | torri [ Sun 07. Apr 2013 20:23 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
Minn var líka bara random, sat stundum inn í bíll og ýtti á takkann endalaust þar til hann opnaðist, stundum einu sinni stundum hundrað sinnum, bara klassíst relay vesen! Hér er góð mynd sem ætti að útskýra nokkuð augljóslega hvernig relay virkar og á sama tíma hvernig það virkar bara stundum og stundum ekki þegar það byrjar að klikka og komst ekki allaleið, haha ![]() ![]() |
Author: | Alpina [ Sun 07. Apr 2013 20:25 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
slapi wrote: RING RING **Halló? * sæll þetta er Guð sem talar ** Já blessaður * heyrðu það er hægt að kóða fjarstýringarnar bara með gamla kóða trixinu ** Geggjað takk. * Já vertu nú góður strákur **Click Þetta er illa fyndið ?? |
Author: | slapi [ Mon 08. Apr 2013 14:02 ] |
Post subject: | Re: samlæsingar E46 |
Víndjöfullinn talar tungum. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |