Eitthvað finnst mér nú minn kæri 318 bíll farinn að verða helst til drykkfelldur.
mér hefur skylist á öðrum eigendum slíkra bíla að undir 10l sé ekki óraunhæft innanbæjar í rvk,
í langkeyrslu hef ég mælt hann í um 7.5l
ég spáði lítið í eyðsluni á honum til að byrja með, og fannst hún lítil
að undanförnu hefur mér hinsvegar farið að rýrna dáldið kílómetratalan sem ég er að ná. en ég er að fara rúma 450km innanbæjar á tanknum (60l) en það erum 13l
13l er 2l meira en E39 bíllinn minn var í og 4l meira en CLK200 og getur nú ekki talist í lagi,
það er ekki hægt að kenna aksturslagi um, get talið skiptin á fingrum annarar handar sem ég hef gefið honum eitthvað inn af ráði.
hafa menn heyrt um N42 með drykkjustæla sem þessa? kerti/loftsía virðast í fínu lagi, engin vélarljós. bíllinn gengur óaðfinnanlega
mbk
ívar


