bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Sími á milli sæta í e39
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=59515
Page 1 of 1

Author:  reynirdavids [ Thu 10. Jan 2013 00:28 ]
Post subject:  Sími á milli sæta í e39

Sælir Piltar

Var að velta fyrir mér með símana í e39 sem þarf sim kort í á stærð við kredit kort.
Er hægt að setja venjulegt kort í þetta ef maður rífur bara rammann ekki utan af nýju korti.

sjáið mynd hér aðeins neðar í þessum þræði: http://www.m5board.com/vbulletin/e39-m5 ... rd-go.html

hefur einhver reynslu af þessu?

Author:  íbbi_ [ Thu 10. Jan 2013 03:33 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

nú hef ég ekki keypt mér símkort nýlega, en maður fékk þau allavega alltaf í stærra unit-i sem er væntanlega ramminn sem þú talar um, hann fer bara í heilu lagi í

Author:  Danni [ Sat 12. Jan 2013 10:36 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

En 3G kort virka samt ekki á þessi símtæki, svo þú verður að fá eldri, 2G gerðina ef það er hægt ennþá.

Ég gat ekki fengið kort sem virkaði í E38 sem ég var með í fyrra eða hitt í fyrra.

Author:  gardara [ Sat 12. Jan 2013 15:06 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

Danni wrote:
En 3G kort virka samt ekki á þessi símtæki, svo þú verður að fá eldri, 2G gerðina ef það er hægt ennþá.

Ég gat ekki fengið kort sem virkaði í E38 sem ég var með í fyrra eða hitt í fyrra.



Hmm ertu alveg viss? Ég veit til þess að menn hafi notað kort frá nova í e39 og eftir því sem ég best veit hafa nova aldrei gefið út 2g kort

Author:  Danni [ Sat 12. Jan 2013 15:27 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

gardara wrote:
Danni wrote:
En 3G kort virka samt ekki á þessi símtæki, svo þú verður að fá eldri, 2G gerðina ef það er hægt ennþá.

Ég gat ekki fengið kort sem virkaði í E38 sem ég var með í fyrra eða hitt í fyrra.



Hmm ertu alveg viss? Ég veit til þess að menn hafi notað kort frá nova í e39 og eftir því sem ég best veit hafa nova aldrei gefið út 2g kort


Allavega þer ég setti frelsiskort frá Nova einmitt í símann á E38 bílnum mínum (1994 árgerð) þá kom á skjáinn "Invalid card". Í E39 bílunum sem ég átti setti ég Síma kort enda var ekkert til sem hét Nova þá :lol: Þau virkuðu án vandræða. Kannski var þetta bara bilað hjá mér og ég er að fara með fleipur... hefur gerst.

Author:  reynirdavids [ Sat 12. Jan 2013 15:36 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

bíllinn minn er 97 model, ég prufaði venjulegt kort frá nova í hann og það gengur ekki, kemur bara "check card"

en kallinn í nova sagði að þetta gengi í m5 sem félagi hans átti..

spurning um að prufa 2g kort eða gamallt nmt, spurning hvar maður fær svoleiðis

Author:  Alpina [ Sat 12. Jan 2013 16:54 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

Þú gætir þurft gömlu kynslóðina af GSM kortum,, fæst að ég held BARA hjá símanum

Author:  íbbi_ [ Sun 13. Jan 2013 19:07 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

ég hef notað nova kort í 2002 E39, 2001 E46

Author:  reynirdavids [ Sun 13. Jan 2013 21:42 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

3g kort?
er síminn nokkuð eins í facelift bílunum?

íbbi_ wrote:
ég hef notað nova kort í 2002 E39, 2001 E46

Author:  íbbi_ [ Sun 13. Jan 2013 22:15 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

það eru nokkrar týpur í gangi

Author:  Andrynn [ Mon 14. Jan 2013 23:22 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

Ég fór í Nova og bað um að fá simkort sem virkar í gamla síma, stakk því í
lesarann sem er undir símanum og það virkaði að sjálfsögðu ekki, þannig
að ég fann út á netinu að þú þarft að stinga því í síma unitið sem er aftur í skotti!!

en þvílík snilld sem það er að hafa símann svona í bílnum, og þú ert í miklu betra
sambandi því að það er alvöru loftnet á þessu, annað en á þessu síma drasli
sem allir eru með í vasanum :P

Author:  reynirdavids [ Tue 15. Jan 2013 20:02 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

flott maður
setti 2g kort frá símanum í unitið sem er í skottinu og þetta svín virkar.
Hinsvegar virkaði ekki 3g kort frá nova í þetta, spurning hvort nova eigi 2g kort?

Author:  Andrynn [ Wed 16. Jan 2013 18:17 ]
Post subject:  Re: Sími á milli sæta í e39

reynirdavids wrote:
Hinsvegar virkaði ekki 3g kort frá nova í þetta, spurning hvort nova eigi 2g kort?



ég er með Nova kort hjá mér

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/