bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hjálp! '99 e39 540i misfire (vídeó innifalið) https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=59465 |
Page 1 of 1 |
Author: | geirisk8 [ Sun 06. Jan 2013 20:31 ] |
Post subject: | Hjálp! '99 e39 540i misfire (vídeó innifalið) |
Mig bráðvantar hjálp sem allra fyrst. Bíllinn minn er 1999 e39 540i sem er ekinn um 188þús og af þeim hef ég sennilega ekið um 20þús á rúmlega tveimur árum. Ég held að fyrrum eigandi/eigendur hafi ekki hugsað vel um hann þar sem ég hef þurft að laga margt. Allavega.. Um daginn gerðist það að bensíndælan fór í bílnum á meðan ég var akandi og afleiðingar þess urðu að kertin urðu alveg sótsvört og ógeðsleg. Ég skipti um dælu og þreif kertin og bíllinn var eins og nýr aftur. Það gerðist fyrir c.a mánuði eða einum og hálfum mánuði síðan. Í gær hóf vélin að láta furðulega og vélarljósið í mælaborðinu byrjaði að blikka (sem þýðir engine misfire) þannig að ég kom bílnum inn í skúr. Ég hef tekið kertin úr og skoðað. Öll voru fín nema eitt sem hafði talsvert af olíu á sér, sem reyndar var líka á þeim tíma sem ég skipti um bensíndælu. Ég þreif kerfið og setti það í og tók úr. Ég gerði þetta nokkrum sinnum. Hér er vídeó sem ég tók af mér að starta honum: Mér hefur verið bent á að prófa að setja smá "Redex" eða hvað sem það heitir ofan í hjá ventlinum. Það á að losa olíuna og eitthvað. Man ekki nákvæmlega hvað var sagt við mig. Eitthvað um að stimpilþéttihringur gæti verið laus, eða jafnvel fastur. Ég verð að leysa þetta vandamál sem allra allra fyrst. Allar hugmyndir eru vel þegnar og endilega spyrjið ef það er eitthvað sem ég tók ekki fram. |
Author: | Danni [ Mon 07. Jan 2013 12:02 ] |
Post subject: | Re: Hjálp! '99 e39 540i misfire (vídeó innifalið) |
Ég myndi koma honum í aflestur einhverstaðar. Hef lent í svakalegum ógangi og sprengingum og látum í bæði E34 og E39 540i hjá mér og í bæði skiptin voru það súrefnisskynjarar í pústinu. En þar sem þinn 540 er '99 árgerð þá eru þeir fjórir, tveir fyrir framan hvarfakúta og tveir fyrir aftan. |
Author: | Zed III [ Mon 07. Jan 2013 12:46 ] |
Post subject: | Re: Hjálp! '99 e39 540i misfire (vídeó innifalið) |
Danni wrote: Ég myndi koma honum í aflestur einhverstaðar. Hef lent í svakalegum ógangi og sprengingum og látum í bæði E34 og E39 540i hjá mér og í bæði skiptin voru það súrefnisskynjarar í pústinu. En þar sem þinn 540 er '99 árgerð þá eru þeir fjórir, tveir fyrir framan hvarfakúta og tveir fyrir aftan. Þessir að framan stýra, þessir að aftan lesa bara. Það eru því bara þessir fremri sem geta orsakað lélegan gang. |
Author: | Ívarbj [ Tue 08. Jan 2013 01:35 ] |
Post subject: | Re: Hjálp! '99 e39 540i misfire (vídeó innifalið) |
Settiru nýja bensínsíu í hann þegar þú skiptir um dæluna og var dælan OEM (Bosch)? Ég lét TB setja nýja dælu í bílinn og hún var ekki Bosch, eftir tæpa tvo mánuði byrjaði bíllinn að ganga illa, ekkert ósvipað videoinu og í hjá þér. Ég setti því OEM síu og dælu í hann og allt í góðu. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |