Þessum bíl finnst gaman að bila enn
Núna er hraðamælirinn hættur að virka til skiptis, þegar bíllinn er búinn að vera heitur í smá tíma þá hættir hraða mælirinn að virka en daginn eftir virkar hann eins og nýr svo hættir hann þegar bíllinn er orðinn heitur og búinn að vera það í smá tíma. Ég fór með hann til eðalbíla til að lesa af honum og þar kom upp að 3 ABS skynjarar væru bilaðir.. Það fannst gæjanum frekar ótrúlegt svo hann benti mér á það að ABS heilinn sé ónýtur útaf hitanum frá pústinu.
Sem mér finnst líka frekar ótrúlegt. Vildi bara athuga hvort einhver hefur lent í þessu og mögulega sagt mér hvað ég skal gera í þessu.
Þeir buðu mér að senda abs heilan til bretlands í viðgerð sem á að kosta 90-150þ krónur, fer eftir hversu mikið er bilað í honum.
Þetta er ABS heili merktur PBT GF 30.
Með fyrir fram þakkir Sveinn J


