Sælir,
Smá vesen enn einu sinni...
Stoppaði fyrir utan búð í 5 mínútur og þegar ég fer aftur út, þá fer bíllinn ekki í gang.
Eftir nánari skoðanir þá kom í ljós að hann fær ekki neista.
Prufaði háspennukeflið og hann fær neista þaðan en ekki út frá kveikjuloki og hamri.
Er með nýlegt lok, hamar og þræði. Ég prufaði þá að setja gamla lokið og hamarinn í en ekkert breyttist..
Einhverjar hugmyndir hvað gæti verið að angra greyið?



