Mig langaði að athuga hvort að þetta sé eitthvað sem menn þekkja. Þar var brotinn hjá mér spegillinn(ekki glerið heldur allt draslið) bílstjóra megin í vetur þannig að hann hékk bara á snúrununum. Ég náði að festa hann en eftir þetta hefur spegillinn(glerið) byrjað að síga niður annarsvegar hægt og ròlega með tímanum og hins vegar þegar ég læsi/opna bílinn með fjarstýringunni eða samlæsingunni inní bíl. S.s þegar ég t.d. læsi bílnum fer hann niður eins og ég myndi stýra honum alla leið niður með stilli takkanum fyrir speglana. Þess ber að geta að ég get ekki lift honum aftur upp með stillitkkanum heldur þarf ég að ýta honum upp. Er þetta eitthvað sem menn kannast við?
_________________ Ómar Páll 8652632
BMW Z3 Honda CRF 250 2007
|